Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51278
Bakgrunnur: Sjúkdómseinkenni sem fylgja krabbameini og aukaverkanir
meðferða geta skyndilega versnað, verið lífsógnandi og þarfnast bráðrar
meðhöndlunar. Hjúkrunarfræðingum á bráðamóttökum getur reynst það
áskorun að veita þá sérhæfðu meðferð sem veikir og þjáðir einstaklingar með krabbamein þarfnast.
Tilgangur: Að kanna viðhorf og reynslu hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum af hjúkrun einstaklinga með krabbamein, skoða mat þeirra á eigin hæfni, þekkingu og sjálfsöryggi í þessum aðstæðum og streitustig.
Tilgangurinn var einnig að kanna réttmæti og áreiðanleika íslensku útgáfunnar af spurningalista um hæfni hjúkrunarfræðinga.
Aðferð: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn. Alls voru 284
hjúkrunarfræðingum á slysa- og bráðamóttökum á sex heilbrigðisstofnunum
og tveimur sjúkrahúsum á Íslandi boðin þátttaka. Notaðir voru
spurningalistarnir Nurse Professional Competence Scale (NPC), Knowledge and Attitudes Survey Regarding Pain (K&A-SRP) og Perceived Stress Scale (PSS). Gögn frá 62 þátttakendum voru greind með þáttagreiningu og lýsandi tölfræði.
Niðurstöður: Flestir þátttakendur (84%) sinntu einstaklingum með
krabbamein oft og mjög oft í núverandi starfi. Þáttagreining sýndi þrjá
hæfniþætti, Þekkingarmiðlun, Hjúkrun og Greining, með Cronbach´s alfa á
bilinu 0,65 – 0,89. Starfsaldur <10 ár á heilbrigðisstofnunum sýndi marktækt alvarlegri streitueinkenni en hjá þátttakendum með starfsaldur ≥10 ár (p=0,016). Neikvæð marktæk fylgni kom fram á milli streitu og aldurs í árum, streitu og starfsaldurs á heilbrigðisstofnun og streitu og þekkingarmiðlunar. Jákvæð marktæk fylgni kom fram á milli hæfniþáttarins þekkingarmiðlun og starfsaldurs á sjúkrahúsi, menntunar og einkunnar. Ennfremur kom fram marktæk jákvæð fylgni á milli þáttanna hjúkrun og einkunn og greining sýndi marktæka jákvæða fylgni við starfsaldur.
Ályktun: Niðurstöður gefa vísbendingar um þörf á fræðslu fyrir
hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum um hjúkrun einstaklinga með krabbamein, með því getur öryggi hjúkrunarfræðinga og gæði í þjónustu þessa einstaklinga aukist. NPC mælitækið hentar til rannsókna á sjálfsmati hjúkrunarfræðinga.
Background: Cancer related symptoms and side effects of treatment can
suddenly worsen, become life threatening, and require urgent care. Nurses in emergency departments may face challenges providing the specialized care that individuals with cancer need.
Purpose: To explore the attitudes and experiences of emergency
departments nurses in caring for individuals with cancer, examine their selfassessed competence, knowledge, confidence in these situations, and stress levels. The purpose also includes evaluating the validity and reliability of the Icelandic version of a questionnaire regarding nurses’ competence.
Method: A quantitative descriptive cross-sectional study. A total of 284
nurses from emergency departments of six healthcare institutions and two
hospitals in Iceland were invited to participate. The questionnaires used were the Nurse Professional Competence Scale (NPC), Knowledge and Attitudes Survey Regarding Pain (K&A-SRP) and Perceived Stress Scale (PSS). Data from 62 participants were analyzed using factor analysis and descriptive statistics.
Results: Most participants (84%) cared for individuals with cancer often or very often in their current position. Factor analysis revealed three competence factors: Knowledge distribution, Nursing and Assessment, with Cronbach’s alpha ranging from 0,65-0,89. Nursing experience in healthcare institution <10 years showed significantly higher stress symptoms than among those with ≥10 years of experience (p=0,016). A significant negative correlation was found between stress and age, years of experience in a healthcare institution and knowledge distribution. A significant positive correlation was found between knowledge distribution and years of hospital experience, education level and
grades. Furthermore, nursing showed a significant positive correlation with assessment, and assessment showed a positive correlation with years of experience.
Conclusion: The findings indicate a need for education for emergency
department nurses regarding cancer care, this could enhance nurses’
confidence and improve the quality of care provided to this patient group. The NPC instrument is suitable for research on nurses’ self-assessment of competence.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Lokaskil-Viðhorf hjúkrunarfræðinga-Katrín Ólafsdóttir..pdf | 1,01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |