Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51279
Bakgrunnur: Einstaklingar með langvinna sjúkdóma lifa lengur, fjöldi aldraðra hefur aukist og áætla má að fleiri þurfi líknar- og lífslokameðferð í framtíðinni. Margir deyja á bráðalegudeildum og samskipti heilbrigðisstarfsfólks við aðstandendur geta haft víðtæk áhrif.
Tilgangur: Megintilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf og reynslu aðstandenda af líknar- og lífslokameðferð með sérstaka áherslu á samskipti við heilbrigðisstarfsfólk og myndun meðferðarsambands.
Aðferð: Eigindleg rannsóknaraðferð með fyrirbærafræðilegri nálgun með tilgangsúrtaki. Gagnasöfnun fór fram með einstaklingsviðtölum með notkun hálfstaðlaðs viðtalsramma. Úrtakið var 20 aðstandendur einstaklinga sem veitt var líknar- og lífslokameðferð á bráðalegudeildum. Gögnin voru greind í þemu og undirþemu.
Niðurstöður: Niðurstöður sýndu mikilvægi þess að vel sé staðið að samskiptum. Aðstandendum var sýnd virðing, viðvera var næg, en tryggt var næði með ástvinum. Flestir þátttakendur höfðu reynslu af góðu viðmóti og upplýsingar voru skýrar. Eftirfylgni og stuðningur eftir andlát gat mildað sorgarferlið og gefið aðstandendum styrk til að aðlagast lífinu eftir missi. Í ljós komu fjögur meginþemu: 1) Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk með undirþemunum: a) Persónuleg samskipti og tengslamyndun, b) Viðvera heilbrigðisstarfsfólks; 2) Upplýsingar með undirþemunum: a) Öryggi og traust, b) Óöryggi og vantraust; 3) Áhrif umhverfis með undirþemunum: a) Jákvæðir þættir og þörf fyrir næði, b) Neikvæðir þættir og álag; 4) Kveðjustund með undirþemunum: a) Hlutverk aðstandenda og sorg, b) Eftirfylgni og þörf fyrir stuðning.
Ályktun: Samskipti og myndun meðferðarsambands eru vandmeðfarin en mikilvæg í líknar- og lífslokameðferð. Til að koma til móts við þarfir aðstandenda þurfa heilbrigðisstarfsmenn að þekkja væntingar þeirra, sýna skilning og stuðla að traustu meðferðarsambandi.
Background: More individuals with chronic diseases live longer, the number of elderly people has increased and it can be estimated that more people will need palliative and end-of-life care in the future. Many die in acute hospital wards and communication between healthcare professionals and relatives can have extensive effects.
Aim: The main purpose of the study was to examine relatives attitudes and experiences of palliative and end-of-life care, with a special emphasis on communication with healthcare professionals and development of interpersonal relationship.
Method: A qualitative research method with a phenomenological approach using a purposive sampling. Data collection was conducted through individual interviews using a semi-structured interview guide. The sample consisted of 20 relatives of individuals who received palliative and end-of-life care in acute hospital wards. Data were analyzed into themes and sub-themes.
Results: Results showed the importance of good communication. Relatives were treated with respect, sufficient presence, while ensuring privacy with loved ones. Most participants had experienced good attitude and information had been clear. Bereavement service and support after death could alleviate the grieving process and give relatives strength to adapt to life after loss. Four main themes were revealed: 1) Communication with healthcare professionals with subthemes: a) Personal communication and development of relationship, b) Presence of healthcare professionals; 2) Information with subthemes: a) Security and trust, b) Insecurity and distrust; 3) Environmental effects with subthemes: a) Positive factors and need for privacy, b) Negative factors and stress; 4) Farewell moment with subthemes: a) Role of relatives and grief, b) Bereavement service and support.
Conclusion: Communication and forming an interpersonal relationship is a delicate matter, but important in palliative and end-of-life care. To meet the needs of the relatives, healthcare professionals need to understand their expectations, show understanding, and promote a trusting interpersonal relationship.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Meistararitgerð-Pála Sigríður.pdf | 1,46 MB | Lokaður til...13.06.2026 | Pála Sigríður Tryggvadóttir Msc lokaritgerð |