is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51280

Titill: 
  • Heilsufar grunnskólabarna á Akureyri : tengsl holdafars við líðan.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tíðni ofþyngdar/offitu meðal barna og unglinga hefur aukist á Íslandi, einkum á landsbyggðinni. Börn og unglingar sem glíma við ofþyngd/offitu greinast í auknum mæli með fitulifur, sykursýki, háan blóðþrýsting, hækkun á blóðfitum, stoðkerfisvandamál og vanlíðan. Offita er flókinn sjúkdómur þar sem orsökin getur verið af líffræðilegum toga, vegna umhverfisáhrifa og lífsstíls ásamt flóknu samspili þessara þátta. Tilgangur Var að kanna holdarfar grunnskólabarna í fjórum árgöngum á Akureyri og tengsl við hreyfingu, mataræði, svefn og líðan. Aðferð Rannsóknin var megindleg, afturskyggn (e. retrospective) lýsandi þversniðsrannsókn á heilsufari grunnskólabarna á Akureyri veturinn 2022- 2023. Notuð voru gögn úr skráningarkerfi hjúkrunarfræðinga í heilsuvernd skólabarna. Gögnin eru byggð á upplýsingum sem fengust úr skólaskoðunum (skimunum) þar sem mæld var hæð og þyngd og tekið heilsueflandi viðtal um lífstíl og líðan nemenda í 1., 4., 7. og 9. bekk. Hlutfall offitu og ofþyngdar var skoðað og hvort marktæk tengsl væru á milli ofþyngdar/offitu og lífsstílsþátta og líðan. Notuð var fjölbreytu aðhvarfsgreining til að greina gögnin Niðurstöður Úrtakið var n=1883 nemendur og svarhlutfall var 98%. Af þeim voru 9,1% í offitu og 19,5% í ofþyngd. Samtals voru 28,6% ekki í kjörþyngd. Tengsl voru á ii milli ofþyngdar/offitu og þess að líða illa bæði heima og í skólanum, vera ósátt(ur) við sjálfa(n) sig og gera eitthvað sem skaðar heilsuna. Einnig voru tengsl milli ofþyngdar/offitu og þess að neyta ekki morgunverðar, gosdrykkju, hreyfingaleysis og að eiga erfitt með að sofna. Ofþyngd/offita eykur líkur á að líða illa heima um 89%, líða illa í skólanum um 77% og að vera ósátt(ur) við sjálfa(n) sig um 90%. Ályktanir Börnum sem glíma við ofþyngd/offitu líður verr en börnum í kjörþyngd og fylgja síður ráðleggingum um heilbrigðan lífstíl. Margir ólíkir áhrifaþættir hafa tengsl við ofþyngd/offitu og því er mikilvægt að þverfagleg teymi sinni meðferðum barna í alvarlegri offitu þar sem unnið er á einstaklingsgrunni.

  • Útdráttur er á ensku

    The prevalence of overweight/obesity among children and adolescents is increasing in Iceland, particularly in rural areas. An increasing number of children and adolescents with overweight/obesity are being diagnosed with fatty liver disease, diabetes, hypertension, dyslipidaemia, musculoskeletal problems, and psychological distress. Obesity is a complex disease, with causes that may be biological, environmental, or lifestyle-related, often involving an intricate interplay of these factors. Aim: To examine overweight/obesity of elementary school children from four grade levels in Akureyri and its associations with physical activity, diet, sleep, and well-being. Method: A quantitative, retrospective, cross-sectional design was used. Data were retrieved from the school health medical registration system maintained by school nurses during the 2022-2023 academic year. These records were based on health screenings, which included measurements of height and weight as well as structured health-promotion interviews regarding lifestyle and wellbeing in grades 1, 4, 7, and 9. The study examined the prevalence of overweight/obesity and analysed significant associations between these conditions and various lifestyle and well-being factors. Multivariate regression analysis was used to interpret the data. iv Results: The sample consisted of 1,883 children, with 98% response rate. Among the participants, 9.1% were classified as obese and 19.5% as overweight, resulting in 28.6% of children not being within a healthy weight range. Overweight/obesity were associated with poorer well-being at home and school, dissatisfaction with oneself, and engaging in health-compromising behaviours. Additionally, not eating breakfast, consuming soft drinks, physical inactivity, and experiencing difficulties falling asleep were linked to overweight/obesity. In addition, it increased the likelihood of experiencing distress at home by 89%, at school by 77%, and of being dissatisfied with oneself by 90%. Conclusion Children struggling with overweight/obesity generally experience poorer well-being compared to those within a healthy weight range and are less likely to adhere to recommendations for a healthy lifestyle. Given the multifactorial nature of obesity, it is crucial that interdisciplinary teams provide individualized treatment for children with severe obesity.

Styrktaraðili: 
  • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkrahúsið á Akureyri.
Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 01.05.2028
Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51280


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaútgáfa29.03.25.pdf5,41 MBLokaður til...01.05.2028HeildartextiPDF
Efnisyfirlit.pdf132,62 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf122,37 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Heildartexti og viðaukar lokaðir til 1. maí 2028