Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51281
Bakgrunnur: Öldruðum fer fjölgandi á Íslandi og eru nú um 15% þjóðarinnar. Eldra fólk á í aukinni hættu á að glíma við langvinna sjúkdóma og hrumleika. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing, streitustjórnun og gott næringarástand hafi verndandi áhrif þegar kemur að því að hafa góða heilsu á efri árum og vera laus við hrumleika. Gott heilsulæsi og viðeigandi heilbrigðisfræðsla geta haft verndandi áhrif til að viðhalda góðri heilsu.
Tilgangur: Að kanna veitta fræðslu og fræðsluóskir í tengslum við ákveðna þætti heilsueflingar hjá eldra fólki á Norðurlandi út frá aldri, búsetu, heilsulæsi, kyni, líkamsþyngdarstuðli og menntunarstigi.
Aðferð: Notast var við gögn úr gagnasafni rannsóknarinnar Heilbrigði og vellíðan eldra fólks í dreifbýli og þéttbýli á Norðurlandi sem var lýðgrunduð þversniðsrannsókn. Tekið var lagskipt slembiúrtak úr þjóðskrá, 175 einstaklingar í dreifbýli (n=70) og þéttbýli (n=105) tóku þátt. Gagnaöflun fór fram veturinn 2017-2018. Gögn um veitta fræðslu og fræðsluóskir voru greind út frá bakgrunnsbreytunum kyn, aldur, búseta, heilsulæsi, menntunarstig og líkamsþyngdarstuðli. Notuð var lýsandi- og ályktunartölfræði við gagnagreiningu.
Niðurstöður: Algengast var að hafa fengið fræðslu um lyfjanotkun, auka hreyfingu eða líkamsþjálfun og bæta mataræði. Munur var á veittri fræðslu eftir aldursflokkum (65-74 ára) eða >75 ára, kyni, búsetu og líkamsþyngdarstuðli. Algengast var að einstaklingar óskuðu eftir aukinni fræðslu um leiðir til að auka hreyfingu og líkamsþjálfun, bæta mataræði og að léttast eða viðhalda núverandi þyngd. Munur var á fræðsluóskum eftir aldursflokkum og líkamsþyngdarstuðli. Jafnan var jákvæð fylgni milli veittrar fræðslu og fræðsluóska.
Ályktun: Eldra fólk fékk fræðslu eftir óskum um fræðslu. Þrátt fyrir veitta fræðslu vill eldra fólk fá frekari fræðslu. Fræðsluáhugi eldra fólks liggur helst í heilbrigðisfræðslu um bætt mataræði, auka hreyfingu og þyngdarstjórnun sem gefur tækifæri á að þróa fræðsluefni í samræmi við þær óskir. Tækifæri eru til frekari rannsókna um veitta fræðslu og fræðsluóskir eldra fólks á Íslandi.
Background: The elderly population accounts for 15% of the population in Iceland. Older people are at increased risk of chronic diseases and frailty. Research shows that regular exercise, stress management, and good nutritional status have protective effects when it comes to maintaining good health in later years and being free from frailty. Good health literacy and appropriate health education can have protective effects in maintaining good health.
Aim: To examine the provided education and educational requests related to specific aspects of health promotion among older adults in Northern Iceland, based on age, residence, health literacy, gender, body mass index, and educational level.
Method: Data from the study database „Health and Well-being of Older Adults in Rural and Urban Areas of Northern Iceland“ was used. It was a population-based cross-sectional study. A random sample was taken from the national registry, with 175 individuals, 70 from rural areas and 105 from urban areas. Data collection took place during the winter of 2017-2018. Data on provided education and educational requests were analyzed based on the background variables: gender, age, residence, health literacy, education level, and body mass index. The data was analyzed with descriptive and inferential statistics.
Results: The most common types of education received were about medication use, increasing physical activity or exercise, and improved nutrition. There were differences in the education provided based on age group (65-74 years or >75 years), gender, residence, and body mass index. The most common requests for additional education were about ways to increase physical activity and exercise, improved nutrition, and lose weight or maintain current weight. There was a difference in educational requests based on age group and body mass index. Generally, there was a positive correlation between the education provided and the educational requests.
Conclusion: Older adults received education based on their requests for education. Despite the education provided, older adults desire additional education. The educational interest of older adults primarily lies in health education on improved nutrition, increasing physical activity, and weight management. There are opportunities for further research on the education provided and the educational requests of older adults in Iceland.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Sigríður A - Meistaraverkefni - Lokaskil.pdf | 1,05 MB | Lokaður til...31.05.2028 | Heildartexti | ||
| Efnisyfirlit - Sigríður A. .pdf | 33,23 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| Heimildir - Sigríður A..pdf | 216,72 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |