Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51283
Bakgrunnur: Rannsóknir hafa sýnt að stjórnendur innan hjúkrunar í dreifbýli mæta margs konar áskorunum í starfi. Þeir þurfa oft að aðlagast nýjum aðstæðum og vinna með takmörkuð úrræði bæði varðandi fjármagn og mannauð, en hafa jafnframt mikil áhrif á breytingar og nýsköpun.
Tilgangur rannsóknar: Að kanna viðhorf og reynslu yfirstjórnenda og millistjórnenda í hjúkrun í dreifbýli á Íslandi.
Aðferð: Eigindleg rannsóknaraðferð með fyrirbærafræðilegri nálgun. Úrtakið var tilgangsúrtak. Gögnum var safnað í formi hálfstaðlaðra viðtala við 20 þátttakendur á tímabilinu september til desember 2023. Gagnagreining fól í sér að innihald textans var greint í þemu.
Niðurstöður: Niðurstöður sýndu að starfsumhverfi hjúkrunarstjórnenda í dreifbýli er breytt frá því sem áður var vegna aukinnar kröfu um sérhæfingu og gæði þjónustu samhliða skorti á fjármagni og fagfólki. Skortur á stuðningi við hjúkrunarstjórnendur var algengur og voru gildi góðra samskipta talin vega þungt í starfi. Fram kom að seigla og sjálfsbjargarviðleitni voru nauðsynlegir eiginleikar hjúkrunarstjórnenda í heilbrigðisþjónustu í dreifbýli til að geta mætt breyttu starfsumhverfi. Gagnagreining leiddi í ljós fjögur meginþemu: 1) Breytt starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu í dreifbýli, 2) Skortur á stuðningi við erfiðar ákvarðanatökur, 3) Samskipti, 4) Seigla og sjálfsbjargarviðleitni. Hvert meginþema samanstóð af nokkrum undirþemum.
Ályktanir: Skilgreining á starfi hjúkrunarstjórnenda í dreifbýli er oft á tíðum óljós, starfið er margþætt og fylgir því mikil ábyrgð. Huga þarf að bæði persónulegum og faglegum stuðningi við hjúkrunarstjórnendur í dreifbýli samfara auknum kröfum um sérhæfingu, skorti á fjármagni og fagfólki. Stuðning væri hægt að bæta með auknum samskiptum á milli stofnana í dreifbýli, með stuðningsneti eða samráðsvettvangi á meðal stjórnenda.
Lykilorð: Stjórnun, dreifbýli, heilbrigðisþjónusta, samskipti, hjúkrunarstjórnendur, seigla, starfsumhverfi, eigindleg rannsókn, fyrirbærafræði.
Background: Studies have shown that nursing managers working in rural nursing face a variety of challenges in their work. They often must adapt to new circumstances and work with limited financial and human resources but are considered important due to their influence on change and innovation.
Aim of study: To evaluate the attitudes and experiences of senior and middle managers in nursing in rural healthcare in Iceland.
Method: Qualitative method with a phenomenological approach using a purposive sampling. Data was collected with a semi-structured interview frame with 20 participants in the period September to December 2023. Data was analyzed into themes and sub-themes.
Results: Main results show that the working environment of nursing managers in rural areas has changed from what it used to be due to increased demands for specialization and quality of service, coupled with a lack of resources and professionals. Lack of support for nursing managers was common, and the value of good communication was seen as a major factor in their work. It was found that resilience and self-reliance are necessary characteristics of nursing managers in rural health services to be able to meet the changed working environment. Data analysis revealed four main themes: 1) Changed working environment in rural health services, 2) Lack of support for difficult decision-making, 3) Communication 4) Resilience and self-reliance. Each of the main themes encompassed a variety of sub-themes.
Conclusions: The definition of the work of nursing managers in rural areas is often unclear, the work is multifaceted and carries great responsibility. It is important to consider both personal and professional support for nursing managers in rural areas in relation to increased demand for specialization, lack of funding and professionals. Support could be improved by increased communication between institutions in rural areas through a support network or consultation forum among nursing managers.
Keywords: Management, rural areas, health services, communication, nurse managers, resilience, work environment, qualitative research, phenomenology.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Lokaeintak meistararitgerðar-Svava Magnea Matt 01.06.25.pdf | 1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |