is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51285

Titill: 
  • Dropinn holar steininn : áföll í æsku, ástvinamissir og sjálfsvíg
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknir benda til þess að flestir hafi upplifað að minnsta
    kosti eitt áfall í æsku. Áföll í æsku geta haft í för með sér margvíslegar afleiðingar, líkt og sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir. Sjálfsvígsmissir (að missa ástvin í sjálfsvígi) getur einnig haft í för með sér ýmsar neikvæðar afleiðingar en talið er að hvert sjálfsvíg hafi áhrif á allt að 135 manns. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif áfalla í æsku á sjálfsvígshugsun annars vegar og sjálfvígstilraun hins vegar meðal kvenna á Íslandi. Miðlunaráhrif sjálfsvígsmissis á þau tengsl voru einnig könnuð. Þá
    voru einnig könnuð áhrif áfalla í æsku og sjálfsvígsmissis á sjálfsvígsferlið. Rannsóknin var megindleg. Notuð voru gögn úr ferilrannsókninni Áfallasaga kvenna. Þátttakendur voru íslenskumælandi konur á aldrinum 18 til 70+ ára sem svöruðu rafrænum spurningalista um áföll í æsku, sjálfsvígshugsanir, sjálfsvígstilraunir og sjálfsvígsmissi. Áföll í æsku voru metin með spurningalistanum Adverse Childhood Experiences International Questionnaire (ACE-IQ), sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir voru metin með spurningum úr The World Health Organization World Mental Health Composite International Diagnostic Interview (WHO WMH-CIDI) og var sjálfsvígsmissir metinn út frá tveimur sjálfstæðum spurningum. Framkvæmd
    var lýsandi tölfræði, fylgni, kí-kvaðrat próf og aðhvarfsgreining. Niðurstöður sýndu að áföll í æsku höfðu jákvæða fylgni við
    sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir. Fjöldi áfalla í æsku stuðlaði að auknum líkum á sjálfsvígshugsunum og sjálfsvígstilraunum. Sjálfsvígsmissir hafði áhrif i á sjálfsvígsferlið, þá sérstaklega hjá þeim sem höfðu upplifað mörg áföll í æsku. Áföll í æsku eru mikilvægur áhættuþáttur fyrir það að upplifa sjálfsvígshugsun og að gera sjálfsvígstilraun á fullorðinsárum. Niðurstöður
    rannsóknarinnar benda til þess að áföll í æsku og sjálfsvígsmissir séu hvoru tveggja mikilvægir áhættuþættir í sjálfsvígsferlinu og að áhrifin verði sterkari eftir því sem lengra er komið inn í ferlið.

  • Útdráttur er á ensku

    Research suggests that the majority of people have experienced
    at least one adverse childhood experience (ACE). ACE has been linked to
    diverse consequences, including suicidal ideation and suicide attempts.
    Suicide bereavement (or losing a loved one due to suicide) can also have
    various negative consequences, with each suicide estimated to affect up to 135 individuals. To examine the relationship between ACE and suicidal ideation and suicide attempts among adult women in Iceland. The mediating effect of suicide bereavement on those relationships were also examined. Additionally, the impact of ACE and suicide bereavement on suicidality were also examined. Data was retrieved from the Icelandic SAGA cohort study. Participants were Icelandic speaking women aged 18 to 70+ who completed an online questionnaire on ACE, suicidality and suicide bereavement. ACE was assessed using the Adverse Childhood Experiences International Questionnaire (ACE-IQ), suicidality was assessed using questions from The World Health Organization World Mental Health Composite International Diagnostic Interview (WHO WMH-CIDI) and suicide bereavement was assessed using two independent questions. Descriptive statistics, correlation, chi-square test and regression analysis were performed. ACE was positively associated with suicidal ideation and suicide attempts. The number of ACEs contributed to an increased likelihood of suicidal ideation and suicide attempts. Suicide bereavement had an effect on the suicidal process, escpecially among those who had an increased number of ACEs. Adverse childhood experiences are important risk factor for experiencing suicidal ideation and suicide attempt in adulthood. These results indicate that childhood trauma and suicide loss are both important risk factors for the suicide process. The effects become stronger the further into the suicide process.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 01.06.2125
Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51285


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistaraverkefni_DiljáBjörkStyrmisdóttir.pdf1,72 MBLokaður til...01.06.2125HeildartextiPDF