is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51288

Titill: 
  • Algengi spilafíknar meðal fanga á Íslandi : megindleg rannsókn á algengi spilafíknar meðal fanga á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Spilafíkn er geðröskun sem getur haft alvarlegar afleiðingar á líf einstaklinga. Hún getur leitt til alvarlegra fjárhagserfiðleika, félagslegrar einangrunar, rofins fjölskyldutengsla og í alvarlegustu tilfellum getur spilafíkn leitt til sjálfsvíga. Spilafíkn getur einnig leitt til ólöglegs athæfis á borð við fjársvik, sem getur endað með fangelsisdómi. Fyrri rannsóknir erlendis hafa bent til þess að spilafíkn sé algengari á meðal fanga en almennings. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna algengi spilafíknar meðal fanga á Íslandi, þar sem áður hafa engar slíkar rannsóknir verið framkvæmdar hérlendis. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og gagnaöflun fór fram í öllum fangelsum landsins sem og á áfangaheimilinu Vernd. Alls tóku 63 fangar þátt og svöruðu spurningalista sem byggður var á South Oaks Gambling Screen (SOGS) og metur spilavanda og spilafíkn. Niðurstöður sýndu fram á hærra hlutfall spilavanda eða spilafíknar meðal fanga heldur en meðal almennings samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Svarhlutfallið var ágætt miðað við sambærilegar erlendar rannsóknir. Íslenskir fangar eru frekar með spilafíkn en erlendir og þeir sem hafa afplánað áður sömuleiðis. Það sama gildir um þá sem hafa lágt menntunarstig og einhleypa. Niðurstöður sýndu fram á tuttugufalt hærra hlutfall spilafíknar meðal fanga en meðal almennings á Íslandi og það samræmist erlendum rannsóknum. Einnig kom fram að tegundir fjárhættuspila tengdust aukinni hættu á spilafíkn. Rannsóknin bendir á mikilvægi þess að beina athygli að spilafíkn innan fangelsiskerfisins og þróun sértækra úrræða fyrir þessa áhættuhópa. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um þörf á aukinni fræðslu, skimun og meðferðarúrræðum fyrir fanga með spilavanda eða spilafíkn. Rannsóknin bætir við fræðilega umfjöllun um spilafíkn meðal fanga og gefur mikilvægar vísbendingar fyrir áframhaldandi rannsóknir og þróun úrræða á þessu sviði.
    Lykilhugtök: Spilafíkn, spilavandi, fjárhættuspil, fangar og lýðheilsa.

  • Útdráttur er á ensku

    Gambling disorder is a mental disorder that can have serious consequences on an individual's life. It can lead to severe financial difficulties, social isolation, broken family relationships, and in the most severe cases, even to suicide. Gambling disorder can also lead to illegal activities such as fraud, which can result in imprisonment. Previous research abroad has indicated that gambling disorder is more prevalent among prisoners than in the general population. In Iceland, the relationship between gambling disorder and its prevalence among prisoners has not yet been studied. This study aimed to examine the prevalence of gambling disorder among prisoners in Iceland, but no such studies had previously been conducted. A quantitative research method was employed, and data were collected from all prisons in Iceland as well as the transitional residence Vernd. A total of 63 inmates participated by completing a questionnaire based on the South Oaks Gambling Screen (SOGS), which assesses gambling behavior and gambling-related problems. The results indicated a higher prevalence of problem or pathological gambling among inmates compared to the general population, based on existing data. The response rate was satisfactory relative to comparable international studies. Prisoners with Icelandic citizenship were more likely to meet criteria for gambling disorder than those with foreign citizenship, and the same applied to individuals who had previously served a prison sentence. Similarly, participants with lower levels of education and those who were single were more likely to exhibit signs of gambling problems. The findings indicated that the prevalence of gambling disorder among prisoners was approximately twenty times higher than in the general population in Iceland, consistent with international research. Furthermore, specific types of gambling were associated with an increased risk of gambling problems. The study highlights the importance of focusing on gambling disorder within the prison system and developing targeted interventions for these at-risk groups. The findings suggest a need for increased education, screening, and treatment options for inmates suffering from problem gambling or gambling disorder. This research contributes to the academic discussion on gambling disorder among prisoners and provides important insights for future research and the development of intervention strategies in this field.
    Keywords: Gambling disorder, problem gambling, gambling, inmates, public health.

Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51288


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Algengi spilafíknar meðal fanga á Íslandi..pdf3,04 MBOpinnPDFSkoða/Opna