is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51293

Titill: 
  • Heilsutengd lífsgæði fullorðinna einstaklinga með bláæðasár : þýðing, staðfæring og forprófun á matstækinu Charing cross venous leg ulcer questionnaire (CCVUQ)
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Bláæðasár eru 60-80% af langvinnum sárum. Þau eru íþyngjandi fyrir einstaklinginn og krefjast mikils af heilbrigðiskerfinu bæði í mannafla og kostnaði. Bláæðasár orsakast af bláæðabilun.
    Einstaklingar með bláæðasár búa við skert Heilsutengd lífsgæði (HTL). Þeir eru með verki, vessi er vandamál, þeir eiga erfitt með að hreyfingu og þeir finna til depurðar. Tilgangur rannsóknarinnar var að þýða, staðfæra og forprófa matstækið CCVUQ (Charing cross venous leg ulcer questionnaire) sem mælir heilsutengd lífstæði hjá fullorðnum einstaklingum með bláæðasár. Annar tilgangur með rannsókninni var að mæla HTL hjá fullorðnum einstaklingum með bláæðasár.
    Aðferð: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn. Mælitækið charing cross venous leg ulcer questionnaire (CCVUQ) var þýtt og staðfært og lagt rafrænt fyrir fullorðna einstaklinga með bláæðsár. Þátttakendur komu frá heilsugæslu og/eða sáramóttökum/húðdeild á Landspítala háskólasjúkrahúsi (LSH) eða Sjúkrahúsinu Akureyri (SAk). Til samanburðar við CCVUQ var matstækið EQ-5D-5L og EQ-VAS lagt fyrir þátttakendur. Bakgrunnsbreytur; kyn, staðsetning þjónustu og aldur. Skoðuð var fylgni milli þátta í mælitækjunum til að meta réttmæti og cronbach a reiknaður til að meta innri áreiðanleika. T-próf tveggja óháðra úrtaka til að kanna hvort marktækur munur á HTL lífsgæðum eftir kyni, aldri eða staðsetningu þjónustu. Líka var gert Mann Whitney U test til að skoða hvort marktækur munur væri eftir kyni, aldri eða staðsetningu þjónustu.
    Niðurstöður: Svarhlutfall var 73% (n=22). Helstu niðurstöður voru að fylgni var milli margra þátta í matstækjunum tveimur. Chronbach a var 0,805-0,871 í þáttum matstækis og 0,934 í matstækinu í heild.
    HTL voru skert 64% voru með verki, 45% sögðu að sárin hindruðu iðkun áhugamála, 68% voru óánægð með útlit fóta sinna, 40% fundu til depurðar og 63% áttu í einhverjum erfiðleikum með gang. Þátttakendur mátu heilsu sína eftir EQ-VAS =34 stig. Engin marktækur munur var á stigum CCVUQ eftir kyni, aldri eða eftir því hvar þjónustan var veitt.
    Ályktun: Niðurstöður gefa vísbendingar um að íslensk þýðing á CCVUQ sé réttmæt og áreiðanleg. Fullorðnir einstaklingar með bláæðasár búa við skert HTL því er mikilvægt að auka þekkingu á eðli og meðferð sáranna hjá heilbrigðisstarfsfólki.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Venous leg ulcers count for 60-80% of all chronic wounds. They are a burden for the individual and for the healthcare system in terms of both manpower and expenses. Venous leg ulcers are caused by venous insufficiency. Individuals with venous leg ulcers have a reduced Health-Related Quality of Life (HQL). They have pain, fluid is a problem, they have difficulty with movement and they feel depressed. The purpose of this thesis is to translate, standardize and pretest the CCVUQ as well as to measure HQL in adults with venous ulcers. Method: Quantitative descriptive cross-sectional study. The charing cross venous leg ulcer questionnaire (CCVUQ) was translated, adapted and applied electronically to adults with venous leg ulcers. The participants came from community health service and/or from specialized wound clinics at LSH or SAk. For comparison with the CCVUQ, the EQ-5D-5L and EQ-VAS were administered to the participants. Background variables; gender, location of service and age. Correlations between similar factors in the measurment tools were examined and a t-test of two independent means was performed to investigate whether there was a difference in HQL according to age, gender or service location. Mann Whitney U test was also done to mesure ef there was a difference in HQL according to age, gender or service location. Results: Response rate was 73% (n=22). There was a positive correlation between many factors in the two instruments. Chronbach a was between 0.805 – 0.871 for the sub-scales and 0.934 for instrument. Other results; 64% had pain, 45% said the wounds prevented them from enjoying hobbies, 68% iv were unhappy with the appearance of their feet, 40% felt depressed, and 63% had some difficulty walking. There were no significant difference in CCVUQ scores by gender, age or by where the service was provided. The participants evaluted their overall health as 34 on EQ-VAS. Conclusion: There is evidence that the Icelandic translation of the CCVUQ is valid and reliable. Adults with venous leg ulcers have impaired HQL, therefore is it important to increase knowledge about the nature and treatment of the ulcers among healthcare personel. The parcitipants according to low EQ-VAS score, think that their overall health is bad. Key words: venous ulcer,quality of life, pain, instrument, cross-sectional study, correlation, relability, validity.

Styrktaraðili: 
  • Samtök um Sárameðferð
    Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 17.06.2027
Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51293


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meistararitgerð skil 2025.pdf3,21 MBLokaður til...17.06.2027HeildartextiPDF