Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51317
Judgment discrepancies in norm violations within close relationships : the influence of socio-political attitudes
Fyrri rannsóknir hafa greint frá tengslum á milli pólitískra viðhorfa og siðferðisdóma. Hins vegar er vöntun á rannsóknum sem skoða hvort pólitískar skoðanir geti mögulega gegnt hlutverki í siðferðilegri ákvörðunartöku í nánum samböndum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort munur væri á því hvernig þátttakendur dæmdu hegðun sína samanborið við hvernig þeir dæmdu hegðun maka varðandi siðferðisbrot í samböndum. Við höfðum sérstaklega áhuga á því að kanna hvort pólitísk viðhorf (þ.e., hægri valdsmannspersónuleiki, félagsleg drottnunargirni og önnur viðhorf tengd íhaldsemi) spáðu fyrir um ósamræmi í dómgreind einstaklinga. Úrtakið samanstóð af 484 þátttakendum sem voru m.a. beðnir að svara spurningum um háttsemi sem tengdist tilfinningalegum brotum, kynferðislegum brotum, brotum gegn vináttumörkum og friðhelgi einkalífs. Niðurstöður leiddu í ljós að þátttakendur töldu eigin hegðun ásættanlegri þegar um kynferðisbrot var að ræða, en töldu hegðun maka ásættanlegri í vináttu- og friðhelgisbrotum. Við framkvæmdum fjölbreytu aðhvarfsgreiningu til að kanna hvort pólitísk viðhorf spáðu fyrir um þennan mismun. Eftir að stjórnað var fyrir aldri, lengd sambands og áliti einstaklinga á hvort þeir teldu sig vera eftirsóknarverður maki bentu niðurstöður ekki til þess að pólitísk viðhorf gætu spáð marktækt fyrir um ósamræmi í dómgreind. Einungis félagsleg drottnunargirni sýndi fram á aukinn mismun á milli mats þátttakenda á eigin hegðun og hegðun maka í siðferðisbrotum tengdum friðhelgi einkalífs.
Ample evidence has shown a relationship between socio-political attitudes and moral judgments. However, the question remains whether these attitudes are also associated with judgments within the contexts of our close relationships. Therefore, we investigated whether individuals show inconstancies between self and partner evaluation of different relationship transgressions and whether the evaluation gap is predicted by socio-political attitudes (i.e., right-wing authoritarianism, social dominance orientation, and Attitude-Based Political Conservatism). Four hundred eighty-four participants in a committed romantic relationship completed measures assessing emotional, friendship boundary, sexual, and privacy violations. Results revealed that participants judged their own actions as more acceptable regarding sexual transgressions, but their partner´s actions as more acceptable regarding friendship and privacy violations. We conducted a hierarchical regression analysis to investigate whether sociopolitical attitudes could predict the variation in the gap between self and partner evaluations. After controlling for age, relationship duration and self-perceived mate value the results demonstrated that socio-political attitudes did not significantly predict evaluation inconsistencies, except for Social Dominance Orientation, which predicted disparity between self- and partner evaluation for privacy threat.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Judgment discrepancies in norm violations within close relationships-The influence of socio-political attitudes-(LOKASKJAL).pdf | 577,03 kB | Lokaður til...29.05.2040 |