Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51338
Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvernig rafræn samskipti hafa áhrif á mörkin milli vinnu og einkalífs sveitarstjóra á Íslandi. Í sífellt stafrænu starfsumhverfi, þar sem tæknin gerir kleift að vera tiltækur hvenær sem er og hvar sem er, hafa sveitarstjórar fundið fyrir breyttum væntingum frá starfsfólki, kjörnum fulltrúum og íbúum. Þeir gegna fjölbreyttu hlutverki sem bæði stjórnendur og samfélagsleg andlit sveitarfélaganna. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálf stöðluð viðtöl við átta
sveitarstjóra með ólíkan bakgrunn og reynslu. Í fræðilegum grunni rannsóknarinnar er stuðst við kenningar um mörkun milli hlutverka, stafrænt álag, tæknivædda stjórnun, og opinbera leiðtogahlutverkið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að rafræn samskipti teygja sig yfir hefðbundin vinnutíma og að mörkin milli vinnu og einkalífs verða óljós. Sveitarstjórar upplifa væntingar um skjót svör, stöðuga viðveru og aðgengi í gegnum margvíslega miðla eins og tölvupóst, Messenger, Teams og samfélagsmiðla. Þeir lýsa einnig því að samskipti fari oft fram á kvöldin og um helgar og að skortur á stefnu eða leiðbeiningum um mörk geri stöðuna enn erfiðari. Rannsóknin leiðir í ljós að ný tækni, þar á meðal gervigreind og fjarfundalausnir, bjóða upp á möguleika til hagræðingar en geta jafnframt aukið á álag ef ekki er mótuð skýr stefna um notkun og aðgengi. Í niðurstöðunum birtist þörf fyrir formleg viðmið og menningu sem styður við jafnvægi og sjálfbæra stjórnun. Rannsóknin leggur áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélög marki skýra stefnu um rafræn samskipti, tryggi að sveitarstjórar geti sett mörk og búi við starfsumhverfi sem tekur mið af tæknibreytingum og mannlegum þáttum.
The purpose of this study is to examine how digital communication influences the boundaries between work and personal life among municipal managers in Iceland. In an increasingly digital work environment, where technology allows constant availability, municipal managers face shifting expectations from staff, elected officials, and citizens. These leaders fulfill complex roles as both administrative managers and symbolic representatives of their municipalities. The study is grounded in a qualitative methodology, based on semi-structured interviews with eight municipal leaders with diverse backgrounds and experiences. The theoretical framework draws on role boundary theory, technostress, digital leadership, and public sector governance. The findings indicate that digital communication extends beyond traditional working hours, blurring the line between work and private life. Municipal managers describe pressure to respond quickly and be constantly available via email, Messenger, Teams, and social media. Many interactions take place during evenings and weekends, and the lack of formal policies or guidance makes it more difficult to manage boundaries. Although new technologies, including artificial intelligence and virtual meeting platforms, offer efficiency, they may also increase pressure and overload without clearly defined expectations and usage policies. The study highlights the need for formal strategies and cultural practices that protect well-being and ensure sustainable leadership. The research calls on local governments to adopt clearer digital communication policies, empower managers to set boundaries, and create a work environment that balances technological innovation with human-centered leadership.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Meistararitgerd_stjornun_Sverrir_Bergmann.pdf | 687,56 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |