is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51339

Titill: 
  • Hvaða áskorunum standa stjórnendur frammi fyrir í fjarvinnuumhverfi? : hvaða aðferðir stuðla að árangursríkri stjórnun í slíku umhverfi?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Með vaxandi útbreiðslu fjarvinnu á undanförnum árum, sérstaklega eftir COVID-19 heimsfaraldurinn, hafa stjórnendur staðið frammi fyrir nýjum og flóknum áskorunum. Fjarvinna hefur umbreytt hefðbundnum stjórnunaraðferðum og kallar á nýja nálgun sem miðar að því að viðhalda skilvirkni, samvinnu og vellíðan starfsfólks þrátt fyrir líkamlega fjarlægð. Í þessari rannsókn er sjónum beint að því hvernig stjórnendur aðlaga stjórnun sína að þessum breyttu aðstæðum og hvaða aðferðir reynast árangursríkastar í stjórnun fjarvinnu. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvernig stjórnendur upplifa og takast á við áskoranir og tækifæri sem felast í fjarvinnu, með áherslu á sveigjanleika, árangursmælingar og tengslamyndun innan teymis. Rannsóknarspurningin er: Hvaða áskorunum standa stjórnendur frammi fyrir í fjarvinnuumhverfi? og hvaða aðferðir stuðla að árangursríkri stjórnun í slíkum aðstæðum?
    Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við stjórnendur átta ólíkra fyrirtækja á Íslandi. Viðtölin voru síðan greind með þemagreiningu til að draga fram mynstur og tengsl milli lykilhugtaka.
    Helstu niðurstöður benda til þess að viðmælendur séu almennt jákvæðir gagnvart fjarvinnu en telji að blandað vinnufyrirkomulag, þar sem starfsfólk vinnur bæði að heiman og á vinnustað, sé árangursríkast. Sveigjanleiki er talinn auka starfsánægju og framleiðni skortur á óformlegum samskiptum og erfiðleikar við frammistöðumælingar eru áskoranir. Mikilvægi trausts, markvissra samskipta og stuðnings stjórnenda kemur einnig skýrt fram. Ályktun rannsóknarinnar er sú að fjarvinna krefst nýrra stjórnunaraðferða þar sem jafnvægi þarf að ríkja milli sveigjanleika og skýrra verklagsreglna. Til að hámarka ávinninginn þurfa stjórnendur að leggja áherslu á sjálfstæði starfsfólks, árangursmiðaða stjórnun og markviss samskipti.

  • Útdráttur er á ensku

    With the increasing prevalence of remote work in recent years, especially following the COVID-19 pandemic, managers have faced new and complex challenges. Remote work has transformed traditional management practices and calls for new approaches aimed at maintaining efficiency, collaboration, and employee well-being despite physical distance. This study focuses on how managers adapt their leadership to these changing circumstances and which methods prove most effective in managing remote teams. The objective of the study is to explore how managers experience and respond to the challenges and opportunities inherent in remote work, with an emphasis on flexibility, performance measurement, and team connection. The research question is: How can managers address the main challenges of remote work, and which methods contribute to effective management in such conditions?
    The study is based on a qualitative methodology, using semi-structured in-depth interviews with managers from eight different companies in Iceland. The interviews were analyzed using thematic analysis to identify patterns and relationships between key concepts.
    The main findings indicate that participants are generally positive toward remote work but believe that a hybrid work model—where employees split their time between working from home and in the office—is the most effective. Flexibility is seen to enhance job satisfaction and productivity, while a lack of informal communication and challenges in performance measurement are noted as obstacles. The importance of trust, purposeful communication, and managerial support also emerged strongly. The study concludes that remote work requires new leadership strategies that balance flexibility with clear processes. To maximize the benefits, managers should emphasize employee autonomy, results-oriented management, and effective communication.

Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51339


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaskil_master_2025_OMS_skemman.pdf579,86 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna