is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Náttúra og skógur > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51487

Titill: 
  • Titill er á ensku Governance Attributes Influencing the Expansion of Birch Woodlands in Iceland
  • Stjórnunarþættir sem hafa áhrif á útbreiðslu birkiskóga á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn skoðar stjórnunartengda þætti sem hafa áhrif á endurheimt birkiskóga á Íslandi, með sérstakri áherslu á sögulegt samhengi og samsetningu stjórnkerfis birkiskóga og samskipti innan þess, á þeim tíma sem rannsóknin var framkvæmd. Áður fyrr voru birkiskógar útbreiddir um allt land, en hafa í gegnum aldirnar minnkað verulega, til að mynda vegna skógarhöggs fyrri tíma og breytinga á landnýtingu. Markmið ritgerðarinnar er að greina helstu stjórnunarþætti sem hafa haft áhrif á útbreiðslu birkiskóga á Íslandi á síðustu öld og að varpa ljósi á breytur sem geta ýtt undir eða hindrað framtíðarvöxt þessara vistkerfa.
    Með ítarlegri greiningu á núverandi stjórnunarumhverfi og sögulegum landstjórnunaraðferðum greinir þessi rannsókn mikilvæga drifkrafta farsælla endurheimtarverkefna, þar á meðal þátttöku samfélagsins, stuðning við stefnumótun og vistfræðilega sérfræðiþekkingu. Rannsóknaraðferðin byggir á víðtækri greiningu á fræðilegum heimildum tengdum birkiskógum, vernd og endurheimt þeirra, auk hálfopinna viðtala við 11 sérfræðinga sem unnu innan eða höfðu unnið innan stjórnkerfis birkiskóga á þeim tíma sem rannsóknin var framkvæmd.
    Niðurstöðurnar voru settar saman í ramma til að greina stjórnunar- og félagslega þætti sem hafa mögulega áhrif á árangur endurheimtar. Niðurstöðurnar benda til að núverandi stjórnkerfi endurheimtar birkiskóga sé hugsanlega ekki nógu skilvirkt til að ná markmiði stjórnvalda fyrir árið 2030 um að auka útbreiðslu birkiskóga upp í 5%. Rannsóknin varpar ljósi á undirliggjandi áskoranir innan stjórnkerfis birkiskóga, svo sem stjórnunartengda óskilvirkni, skort á fjármagni og árekstra vegna mismunandi landnýtingar. Bæði söguleg gögn og viðhorf sérfræðinga draga fram hversu flókið samspil margra þátta hefur áhrif á árangur endurheimtar. Þrátt fyrir að fjöldi viðmælenda að baki rannsókninni takmarki alhæfingargildi niðurstaðna, gefa þær þó sterkar vísbendingar sem krefjast frekari rannsókna.

  • Útdráttur er á ensku

    This study examines the governance attributes influencing the restoration of birch woodlands in Iceland, with particular emphasis on the historical context and current interactions within the relevant governance system at the time of research. Once widespread across the country, birch woodlands have significantly declined due to human activities such as deforestation and land-use changes. The objective of this thesis is to identify key governance attributes that have influenced the distribution of birch woodlands in Iceland over the past century and to highlight the main factors that may either facilitate or hinder the future expansion of these ecosystems.
    Through a comprehensive analysis of existing governance frameworks and historical land management practices, this study identifies critical drivers of successful restoration initiatives, including community engagement, policy support, and ecological expertise. The research methodology combines an extensive literature review on ecosystem restoration and governance with semi-structured interviews of 11 experts involved with the governance system of birch woodlands in various capacities.
    The findings were synthesized into a framework for analyzing governance and social factors affecting restoration outcomes. Results indicate that the current governance system overseeing birch woodland restoration may lack sufficient institutional capacity to meet the government’s 2030 target of increasing birch woodland coverage to 5%. The study reveals underlying challenges such as administrative inefficiencies, inadequate funding, and conflicting land-use interests. Both historical data and expert insights highlight a complex array of variables influencing restoration success, underscoring the multifaceted and intricate nature of the issue. While the small sample size limits the generalizability of these findings, they nonetheless provide compelling indicators warranting further investigation.

Samþykkt: 
  • 10.9.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51487


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ingolfur_Petursson_MSc.pdf1,46 MBOpinnPDFSkoða/Opna