Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5161
Orðið viðskiptavild brennur á margra vörum í dag. Margir telja að viðskiptavild hafi verið ranglega færð í bækur félaga og notuð til að sýna betri fjárhagsstöðu þeirra. Skilgreindir verða þeir alþjóðlegu reikningsskilastaðlar (IFRS) sem á einhvern
hátt tengjast viðskiptavildinni og athugað hvaða reglur gilda um viðskiptavildina samkvæmt þeim. Skoðuð verða nokkur íslensk fyrirtæki ásamt einu erlendu og er
markmið þessarar athugunar að komast að því hvort viðskiptavild sé meðhöndluð á annan hátt erlendis en hér heima. Þar sem úrtakið í þessari athugun er ekki stórt þá verða niðurstöður að vera teknar með fyrirvara. Miðað við niðurstöðurnar í þessari ritgerð þá er þróunin á viðskiptavildinni hraðari og meiri hérlendis heldur en erlendis. Hækkun viðskiptavildar hérlendis má rekja til útrásarinnar sem stóð sem hæst árið 2007. Af þessum niðurstöðum má áætla það að íslensk fyrirtæki séu að ofmeta viðskiptavild sína og gæti einnig verið um að ræða að fyrirtæki séu að borga of mikið fyrir keyptar eignir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskil _12052010_.pdf | 371.49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |