is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51622

Titill: 
  • Þetta var klárlega ein af mínum bestu ákvörðunum : reynsla fólks af því að fara í efnaskiptaaðgerð, helstu áskoranir og áhrif á sjálfsmynd og sálfélagslega líðan tveimur til fimm árum eftir aðgerð
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Efnaskiptaaðgerðir hafa reynst árangursríkar í meðferð við alvarlegri offitu. Aðgerðirnar eru stórt inngrip þar sem breytingar eru gerðar á meltingarfærum einstaklinga og krefjast bæði líkamlegrar og sálfélagslegrar aðlögunar. Fjöldi slíkra aðgerða á Íslandi margfaldaðist á árunum 2017–2022 en persónuleg reynsla einstaklinga af aðgerðinni, áhrif hennar á sjálfsmynd og sálfélagslega líðan og hvaða áskoranir hún felur í sér hefur lítið verið rannsakað með eigindlegum aðferðum.
    Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar er að dýpka þekkingu og skilning á upplifun fólks af því að fara í efnaskiptaaðgerð, helstu áskorunum og áhrifum hennar á sjálfsmynd og sálfélagslega líðan.
    Aðferðafræði: Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlega aðferðafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Tekin voru tíu hálfstöðluð viðtöl við við átta konur og tvo karla. Skilyrði fyrir þátttöku voru að hafa farið í efnaskiptaaðgerð fyrir 2-5 árum, tala íslensku og vera á aldrinum 18-67 ára.
    Niðurstöður: Yfirþema reyndist vera: Þetta var klárlega ein af mínum bestu ákvörðunum. Þrjú meginþemu komu fram: 1) Ástæður fyrir aðgerð – búin að reyna allt, 2) Ekki léttvæg ákvörðun að fara í aðgerð – þetta snerist alfarið um heilsuna og 3) „Nýtt líf“ eftir aðgerð – en þú verður áfram að vinna vinnuna. Undir fyrsta meginþemanu eru þrjú undirþemu, „Erfiðleikar eða áföll“, „Fylgikvillar offitu“ og „Baráttan endalausa“. Undir öðru meginþemanu eru tvö undirþemu, „Fordómar“ og „Óvissa“. Undir þriðja meginþemanu eru þrjú undirþemu, „Betri lífsgæði“, „Viðmót annarra og sálfélagsleg áhrif“ og „Ótti við að þyngjast aftur“.
    Ályktanir: Reynsla þátttakenda af efnaskiptaaðgerðinni var heilt yfir jákvæð en ákvörðunin var ekki léttvæg. Lífsgæði jukust vegna bættrar líkamlegrar heilsu og í sumum tilfellum sjálfsmyndar og sálfélagslegrar líðanar. Mikilvægt er að uppræta fordóma meðal fagfólks og almennings og veita fólki sem glímir við offitusjúkdóm fjölþætta, einstaklingsmiðaða þjónustu. Huga þarf betur að sálfélagslegri líðan í eftirfylgni meðferðar.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Metabolic surgeries have proven effective for weight loss in the treatment of severe obesity. These procedures are major interventions, involving modifications to the gastrointestinal system, and require physical and psychosocial adjustment. The number of metabolic surgeries performed in Iceland multiplied between 2017 and 2022. Qualitative research is limited on personal experiences, specifically the challenges individuals encounter throughout the process.
    Purpose: The aim of the study is to deepen the knowledge and understanding of individuals’ experiences undergoing metabolic surgery, its impact on psychosocial well-being and self-image, and the main challenges they face after surgery.
    Method: The qualitative methodology of the Vancouver School of Phenomenology was used. Ten semi-structured interviews were conducted with eight women and two men. Eligibility criteria included having undergone metabolic surgery 2–5 years prior, speaking Icelandic and being 18-67 years old.
    Results: The overarching theme was: This was definitely one of my best decisions. Under this, three main themes emerged: 1) Reasons for undergoing surgery – I had tried everything, 2) Not an easy decision – it was entirely about health, 3) “A new life“ after surgery – but you still have to do the work. The first main theme had the subthemes „Difficulties and Trauma“, „Obesity-related Complications“ and „The Never-ending Struggle“. The second main theme had the subthemes „Stigma“ and „Uncertainty“ and the third main theme had the subthemes „Improved Quality of Life“, „Reactions from Others and Psychosocial Impact“ and „Fear of Weight Regain“.
    Conclusion: Overall, participants‘ experience was positive, although the decision was difficult. Quality of life improved through better physical health and, for some, enhanced self-image and psychosocial well-being. Addressing stigma among the public and health-professionals and ensuring integrated, person-centred care for people with obesity is essential, along with greater focus on psychosocial well-being in follow-up.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 30.11.2026
Samþykkt: 
  • 28.10.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51622


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fylgiskjöl.pdf443,37 kBLokaður til...30.11.2026FylgiskjölPDF
Heimildir.pdf127,01 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Efnisyfirlit.pdf83,53 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Meistararitgerð .pdf1,16 MBLokaður til...30.11.2026HeildartextiPDF