is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51640

Titill: 
  • „Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga“. Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Flestar rannsóknir sem gerðar hafa verið varðandi atvinnuþátttöku fatlaðs fólks benda til að sá hópur búi við félagslega jaðarsetningu í atvinnumálum. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að einhverfir einstaklingar séu enn jaðarsettari en aðrir fötlunarhópar þegar kemur að
    atvinnuþátttöku. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða þættir yllu því að einhverfir einstaklingar stæðu frekar utan við vinnumarkað en aðrir og hvort kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum væru einn af þeim þáttum. Rannsóknin var tvíþætt og stuðst við bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sex einhverfa einstaklinga á vinnualdri annars vegar og hins vegar unnið með fyrirliggjandi gögn þar sem atvinnuauglýsingum var safnað yfir ákveðið tímabil. Voru gögnin að því loknu rýnd með tilliti til þess hversu ríkar kröfur voru gerðar um samskiptahæfni og hvort um mun væri að ræða eftir því hvort störf tilheyrðu hinum opinbera eða almennum vinnumarkaði eða á hvaða kunnáttustigi störfin voru. Niðurstöður eigindlega hluta rannsóknar voru þær að flestir viðmælendur nefndu ríkar kröfur um samskiptahæfni sem eina af hindrunum á vinnumarkaði. Niðurstöður megindlega hluta rannsóknar sýndu að kröfur um samskiptahæfni eru gerðar fyrir mikinn meirihluta starfa. Greina mátti mun á milli hins opinbera og hins almenna vinnumarkaðar þar sem opinberar stofnanir gera ríkari kröfur um samskiptahæfni en fyrirtæki í einkageiranum. Einnig voru ríkari
    kröfur gerðar um samskiptahæfni fyrir störf á kunnáttustigum 3 og 4 en á kunnáttustigum 1 og 2. Niðurstöður gefa til kynna að mögulega séu gerðar of ríkar kröfur um samskiptahæfni fyrir störf á íslenskum vinnumarkaði, sérstaklega í opinbera geiranum. Niðurstöður geta gagnast við gerð starfagreininga, starfslýsinga og hæfniskrafa með fjölbreytileika og inngildingu að leiðarljósi.

  • Útdráttur er á ensku

    Most studies regarding the employment participation of disabled individuals suggest that this group faces social marginalisation in employment matters. Moreover, it has been demonstrated that autistic individuals are even more marginalised than other disability groups in terms of employment participation. The aim of this research was to explore the factors that lead autistic individuals to be more excluded from the labour market than others and whether requirements for communication skills in job advertisements are one of these factors. The research was dual faceted, utilising both qualitative and quantitative research methods. Semi-structured interviews were conducted with six autistic individuals of working age, and existing data were analysed where job advertisements collected over a specific period were scrutinised for how stringent the communication skill requirements were. The study also examined whether there were differences depending on whether jobs belonged to the public or private sector or the skill level of the jobs. The qualitative part of the study found that most interviewees cited high demands for communication skills as one of the barriers in the job market. The quantitative results showed that requirements for communication skills are made for a significant majority of jobs. There was a discernible difference between the public and private sectors, with public institutions requiring higher levels of communication skills than private sector companies. Additionally, higher demands for communication skills were required for jobs at skill levels 3 and 4. The results suggest that possibly excessive demands for communication skills are being made for jobs in the Icelandic labour market, particularly in the public sector. These findings could be useful in creating job analyses, job descriptions, and competency requirements with diversity and inclusion as guiding principles.

Samþykkt: 
  • 7.11.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51640


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BjarneyLarudottirBjarnadottir_MS_lokaverk..pdf1,02 MBOpinnPDFSkoða/Opna