is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51676

Titill: 
  • Frá húsnæði til inngildingar: Upplifun íbúa Húsnæði fyrst af félagslegri stöðu og þátttöku
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Heimilisleysi er skýr birtingarmynd jaðarstöðu í samfélagi og þjónustukerfum og tengist fordómum, stimplun, lakari heilsu og félagslegri einangrun sem skerðir aðgengi og lífsgæði. Húsnæði fyrst og skaðaminnkun byggja á skilyrðislausum rétti til húsnæðis og sveigjanlegum, einstaklingsmiðuðum stuðningi. Rannsóknir sýna meiri húsnæðisstöðugleika, betri líðan og aukinn bata með slíkri nálgun. Húsnæði eitt og sér dugar þó ekki til að ná þeim bættum lífsgæðum sem felast í aukinni þátttöku og félagslegri inngildingu. Þörf er á samþættri félags- og heilbrigðisþjónustu og markvissum stuðningi við daglega færni, tengsl og daglega virkni. Kenningar Arnstein um þátttöku, Pierre Bourdieu um auðmagn og veruhátt og kenningar Goffmans um stimplun skýra hvernig vald og viðhorf takmarka tækifæri til þátttöku og geta viðhaldið einangrun þrátt fyrir húsnæðisöryggi. Markmið rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig Húsnæði fyrst getur stutt við þátttöku og félagslega inngildingu einstaklinga með reynslu af heimilisleysi. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Gagnagreining byggði á sjö viðtölum og þemagreining leiddi í ljós fjögur meginþemu og tvö undirþemu.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að Húsnæði fyrst stuðli að auknu sjálfræði og bættum lífsgæðum, en félagsleg einangrun og veik félagsleg staða er áfram viðvarandi. Skortur á traustum tengslum, tækifærum til virkni og viðvarandi stimplun hamlar þátttöku og félagslegri inngildingu. Niðurstöður benda til að efla þurfi þátttöku og
    félagslega inngildingu íbúa í Húsnæði fyrst með snemmtækum og samþættum stuðningi við félagsfærni, rútínu og virkni. Kerfisbundin stimplun dregur jafnframt úr tækifærum og því þarf markvissar aðgerðir gegn fordómum og auknum skilningi í samfélaginu.

Samþykkt: 
  • 24.11.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51676


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaeintak_olofbrynja.pdf1,45 MBLokaður til...20.02.2026HeildartextiPDF
yfirlysingummedferdlokaverkefna_olofbrynja.pdf157,38 kBLokaðurYfirlýsingPDF