en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/51680

Title: 
  • Title is in Icelandic "Ég vissi alveg að þetta væri ekki heilbrigt samband sem ég var í": Upplifun kvenna á því að eiga maka með vímuefnaröskun
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Vímuefnaröskun hefur ekki einungis áhrif á einstaklinginn sjálfan heldur fjölskyldukerfið hans í heild. Áhrif hennar á aðra fjölskyldumeðlimi geta verið andleg, líkamleg og félagsleg, en geta þó verið misjöfn meðal fjölskyldumeðlima. Markmið þessarar eigindlegu rannsóknar er að dýpka skilning og lýsa upplifun og reynslu íslenskra kvenna sem eiga eða hafa átt maka með vímuefnaröskun eða þeir þurft á aðstoð að halda vegna neyslu vímuefna. Horft var til upplifunar þeirra á samskiptum ásamt áhrifum vímuefnaröskunar á andlega, líkamlega og félagslega líðan þeirra. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðarfræði og fyrirbæranálgun þar sem gögnum var safnað í formi hálfstaðlaðra opinna viðtala ásamt því að finna merkingarbærar niðurstöður út frá upplifun og reynslu þátttakenda.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós sex þemu sem nýttust til að svara rannsóknarspurningum sem og fræðilegt yfirlit ritgerðarinnar. Niðurstöður sýna að konur sem eiga eða hafa átt maka með vímuefnaröskun upplifa gjarnan álag, óöryggi og tilfinningalega spennu sem getur haft áhrif á líðan þeirra og sjálfsmynd. Flestar konurnar báru meginábyrgð á heimilinu sem og börnum þeirra, ábyrgðinni sem fylgdi því að eiga maka með vímuefnaröskun hafði einnig áhrif á félagslega virkni þeirra.
    Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að líta á vímuefnaröskun sem fjölskyldusjúkdóm fremur en einstaklingssjúkdóm, sem og að efla stuðningsúrræði fyrir maka einstaklinga með vímuefnaröskun. Miklvægt er að leggja áherslu á fræðslu, ráðgöf og félagslegan stuðning til að draga úr skömm, félagslegri einangrun og vanlíðan kvenna í slíkum aðstæðum.
    Lykilorð: Vímuefnaröskun, fjölskylda, parasamband, áhrif og upplifun

  • Substance use disorder is an illness that affects not only the individual but also the family system as a whole. Its impact on other family members can be psychological, physical, and social, although it may vary between individuals within the family. The aim of this qualitative study was to deepen the understanding of and describe the experiences of Icelandic women who are or have been in a relationship with a partner suffering from a substance use disorder, or who have required assistance due to their partner’s substance use. The study explored their experiences of communication and the effects of substance use disorder on their mental, physical, and social well-being. The research was based on a qualitative methodology and a phenomenological approach, using semi-structured interviews to collect data and identify meaningful themes derived from participants’ lived experiences.
    The findings revealed six main themes that contributed to answering the research questions, as well as supporting the theoretical framework of the study. The results showed that women who are or have been in a relationship with a partner with a substance use disorder experience significant stress, insecurity, and emotional tension, all of which influence their well-being and self-image. Most participants carried the main responsibility for household management and childcare, and the burden of living with a partner suffering from substance use disorder also affected their social well-being.
    The study highlighted the importance of viewing substance use disorder as a family illness rather than an individual one and emphasizes the need to strengthen support systems for partners of individuals with substance use disorders. It is essential to promote education, counseling, and social support to reduce stigma, social isolation, and emotional distress among women living in such circumstances.
    Keywords: Substance use disorder, family, parter relationship, impact and experience

Accepted: 
  • Nov 25, 2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51680


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
kra41_Katla_Lokaritgerð.pdf737,96 kBLocked Until...2026/06/30Complete TextPDF
yfirlysing-editable-2.pdf1,46 MBLockedDeclaration of AccessPDF