is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51689

Titill: 
  • "Það er gott að vera þar sem gleðin býr." Áhrif félagslegrar virkni á heilsu og lífsgæði aldraðra í Grafarvogi
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig þátttaka í félagsstarfi eldri borgara í félagsmiðstöðinni Borgir í Grafarvogi hefði áhrif á heilsu og lífsgæði aldraðra í Grafarvogi. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig félagsleg virkni, samvera og sjálfboðaliðastarf gæti stuðlað að aukinni vellíðan og farsælli öldrun. Rannsóknin er eigindleg rannsókn sem byggir á sjö djúpviðtölum við einstaklinga á aldrinum 70–96 ára sem öll eru virk í starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Borgar. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl og gögn voru þemagreind. Helstu niðurstöður sýna að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Borgar hafði jákvæð áhrif á lífsgæði og heilsu þátttakenda. Jafnframt að hugmyndafræðin sem félagsmiðstöðin starfar eftir reynist árangursrík, en hún byggir á samfélagsvinnu, valdeflingu og þjónandi forystu. Viðmælendur lýstu að þátttaka í félagsmiðstöðinni skilaði þeim aukinni félagslegri virkni, bættri líkamlegri og andlegri líðan, tilfinningu fyrir tilgangi og auknum tengslum við aðra. Þátttaka í félagsmiðstöðinni veitti þeim aukið öryggi á erfiðum tímum, félagsskap og tækifæri til að læra nýja færni, gefa af sér og finna til samkenndar með öðrum. Samvera og hlýlegt andrúmsloft skapaði vettvang sem dró úr einmanaleika og styrkti félagslega tengingu og samstöðu í nærumhverfi þeirra. Rannsóknin gefur til kynna mikilvægi félags- og sjálfboðaliðastarfs sem leiðir til aukinnar þátttöku, sjálfstæðis og betri lífsgæða þátttakenda félagsmiðstöðva eldri borgara. Niðurstöðurnar geta nýst sem vísbending um mikilvægi félagsmiðstöðva í nærumhverfi aldraðra. Einnig geta þær nýst sveitarfélögum og stefnumótunaraðilum við þróun þjónustu og aðgerða sem miða að því að efla félagslega virkni og farsæla og heilbrigða öldrun.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of the study was to examine participation in social activities for senior citizens at the Borgir community center in Grafarvogur. A special emphasis was placed on examining how social activity, companionship, and volunteer work could contribute to increased well-being and successful aging. The study is a qualitative study based on seven in-depth interviews with individuals aged 70–96, all of whom are active in the activities of the Borgir community center. Semi-structured interviews were conducted, and the data was thematically analyzed. The main findings show that the activities of the Borgir community center had a positive impact on the quality of life and health of the participants. Furthermore, the ideology that the Borgir community center operates by is working, which is based on community work, empowerment, and servant leadership. The interviewees described increased social activity, improved physical and mental well-being, a sense of purpose, and increased connections with others. The community center provided them with security, companionship, and opportunities to learn new skills, give back, and feel empathy for others. The social interaction and warm atmosphere created a platform that reduced loneliness and strengthened social capital in their local community. The study highlighted the importance of social and volunteer work that leads to increased participation, independence, and a better quality of life for participants at community centers for senior citizens. The findings can serve as an indication of the importance of community centers in the local environment of the elderly. They can also be useful for municipalities and policymakers in developing services and actions aimed at promoting social activity, successful, and healthy aging.

Samþykkt: 
  • 25.11.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51689


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð-IDB.pdf1,51 MBLokaður til...20.02.2026HeildartextiPDF
skemmuyfirlýsing.pdf1,52 MBLokaðurYfirlýsingPDF