Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51699
Farsæl skólaganga er mikilvægur þáttur í velferð barna, þar sem hún stuðlar að þroska, félagslegri þátttöku og jákvæðri námsframvindu. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á núverandi stöðu skólafélagsráðgjafa í íslenskum grunnskólum, kanna þekkingu skólastjórnenda á hutverki þeirra ásamt því að kanna hvort þeir telji þröf á að hafa félagsráðgjafa í skólum. Í rannsókninni var beitt megindlegri aðferðafræði og byggja niðurstöðurnar á svörum 181 þátttakanda sem svöruðu spurningalistanum, sem samsvarar 59,9% svarhlutfalli af heildarfjölda 304 þátttakenda sem fengu listann sendan. Í niðurstöðunum kemur fram að helstu verkefni skólafélagsráðgjafa í íslenskum grunnskólum sé persónuleg ráðgjöf, tilfinningalegur stuðningur, samstarf við foreldra og barnavernd auk samþættingar þjónustu og snemmtæk inngrip samkvæmt farsældarlögum. Þá telja 46,7% skólastjórnenda sig vera mjög eða frekar vel upplýsta um hlutverk og stöðu skólafélagsráðgjafa í grunnskólum á meðan 28,7% telja sig vera frekar eða mjög illa upplýsta. Skólastjórnendur sem starfa í skólum þar sem félagsráðgjafi er til staðar hafa meiri þekkingu á starfssviðinu en þeir stjórnendur sem ekki hafa félagsráðgjafa í sínum skóla. Um helmingur þátttakenda telur að innleiðing farsældalaganna hafi aukið þörfina fyrir félagsráðgjafa í grunnskólum og 77,9% skólastjórnenda telja mikilvægt að hafa félagsráðgjafa í öllum skólum landsins. Þessar niðurstöður má skoða í samhengi við þær áskoranir sem grunnskólar standa frammi fyrir í dag sem snúa að hegðun og líðan nemenda, miklu álagi í skólastarfinu, krefjandi foreldrasamskiptum, samfélagsbreytingum og skorti á úrræðum og faglegum stuðningi innan skólanna. Út frá niðurstöðunum má ætla að skólastjórnendur séu að kalla eftir fjölgun fagfólks innan grunnskólanna og telji að skólafélagsráðgjafar geti gengt mikilvægu hlutverki í því að styðja við og efla getu skólanna til að mæta þeim áskorunum sem íslenskir grunnskólar standa frammi fyrir í dag.
Lykilorð: skólafélagsráðgjöf, grunnskóli, skólastjórnendur, farsældarlögin
A successful school experience is important as it supports students’ development, social participation, and forms the foundation for their well-being and academic progress. The study examines the status of school social work in Icelandic compulsory school (for children aged 6-16 years) and the views and knowledge of school administrators regarding the role and position of school social workers. The aim of the research is to shed light on the current status of school social work in Iceland, to assess how well school administrators understand the role and function of social workers and to explore whether they consider such positions necessary in all compulsory schools in the country. A quantitative research approach was used and the findings are based on responses from 181 participants who completed the questionnaire, corresponding to a 59,9% response rate of the 304 participants who received it. The results show that the main tasks of school social workers in Icelandic compulsory schools include personal counselling, emotional support, collaboration with parents and child protection services, as well as service integration and early intervention in accordance with the the prosperity act No. 86/2021. Furthermore, 46,7% of school administrators report being very or fairly well informed about the role and position of school social workers, while 28,7% consider themselves to be fairly or very poorly informed. School administrators working in schools where a social worker is present have greater knowledge of the profession than those who do not. About half of the participants believe that the implementation of the prosperity act has increased the need for social workers in compulsory schools, and 77,9% of school administrators want such positions to exist in all schools across the country. These findings can be viewed in the context of the challenges that schools face today, many of which are social in nature and fall largely within the scope of social work. These challenges relate to student behaviour and well-being, high workloads in school settings, demanding communication with parents, social changes and a lack of resources and professional support within schools. Based on the results, it can be assumed that school administrators are calling for increased specialist services within the schools and believe that school social work plays an important role in supporting and strengthening the schools' ability to meet the challenges that Icelandic compulsory schools face today.
Key words: school social work, compulsory schools, school administrators
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| MA ritgerð_khv9.pdf | 942,89 kB | Lokaður til...13.06.2026 | Heildartexti | ||
| yfirlysingSkemman_khv9.pdf | 1,51 MB | Lokaður | Yfirlýsing |