Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51702
Rannsókn þessi er lokaverkefni til MA-gráðu í félagsráðgjöf til starfsréttinda við Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun og reynslu kvenna sem greinst hafa með gallstasa á meðgöngu og hvernig líkamleg einkenni, andleg líðan og þjónustuupplifun móta þessa reynslu. Einnig var markmiðið að skoða hvernig fræðsla,
eftirfylgd og verkferlar í íslenskri meðgönguvernd samræmast erlendum klínískum leiðbeiningum. Um eigindlega rannsókn var að ræða þar sem tekin voru hálfstöðluð djúpviðtöl við konur sem höfðu greinst með gallstasa á meðgöngu. Viðtölin voru afrituð og þemagreind í þeim tilgangi að greina sameiginlega þætti í upplifun viðmælenda.
Greining gagna leiddi í ljós fjögur meginþemu. Fyrst voru líkamleg einkenni á borð við kláða, svefnleysi og áhrif á daglegt líf. Næst kom andleg líðan og áhrif sjúkdómsins á tengslamyndun móður og barns Svo kom kerfisupplifun sem tengdist fræðslu, stuðningi, samfellu og aðgengi að þjónustu. Síðast en ekki síst kom samanburður íslenskra verkferla
við erlendar leiðbeiningar. Niðurstöður sýna að óvissa, líkamleg óþægindi og skortur á samræmdri fræðslu höfðu áhrif á líðan kvenna og upplifun þeirra af öryggi á meðgöngu. Þátttakendur lýstu breytilegri þjónustu, skort á fræðslu og eftirfylgd, en lýstu jafnframt
jákvæðri reynslu af stuðning einstakra ljósmæðra. Samanburður á verkferlum sýndi að þörf sé á skýrari verklagi fyrir meðferð kvenna sem greinast með gallstasa á meðgöngu og og eftirfylgd. Þá má ætla að frekari rannsóknir á íslenskum aðstæðum, bæði eigindlegar og megindlegar, séu mikilvægar til að dýpka skilning og efla gæði þjónustu við konur með gallstasa á meðgöngu.
Lykilorð: Gallstasi á meðgöngu, andleg líðan, tengslamyndun, kerfisupplifun, fræðsla,
stuðningur, meðgönguvernd, heilbrigðiskerfið
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| yfirlýsingLauraRóbertsdóttir.pdf | 1,56 MB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
| LokaverkefniGallstasiMA.pdf | 884,89 kB | Lokaður til...13.06.2026 | Heildartexti |