Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51709
“The violence never stopped, it merely changed form”: Survivors’ experiences of stalking following intimate partner violence
Rannsókn þessi fjallar um reynslu og upplifun þolenda af umsáturseinelti í kjölfar ofbeldis í nánu sambandi á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á birtingarmyndir, áhættuþætti og afleiðingar slíks ofbeldis og kanna hvernig réttarkerfið og stuðningskerfi samfélagsins bregðast við slíkum málum. Rannsóknarspurningarnar snéru annars vegar að því hvernig umsáturseinelti lýsir sér samkvæmt frásögnum þolenda og hins vegar hvernig yfirvöld og stuðningskerfi bregðast við. Rannsóknin byggði á eigindlegri fyrirbæranálgun sem veitir djúpa innsýn í reynslu og upplifun þolenda. Viðtöl voru tekin við einstaklinga sem upplifað höfðu umsáturseinelti af hálfu fyrrverandi maka í kjölfar ofbeldis í nánu sambandi. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki og snjóboltaúrtaki. Auglýst var eftir þátttakendum á samfélagsmiðlum og vísaði hluti þeirra til annarra sem uppfylltu skilyrði fyrir þátttöku. Niðurstöður bentu til þess að umsáturseinelti geti valdið langvarandi sálrænum, félagslegum og líkamlegum afleiðingum á borð við kvíða, þunglyndi, félagslegri einangrun og svefntruflunum. Helstu ályktanir eru að þörf sé á aukinni fræðslu og skilningi fagfólks og samfélagsins á umfangi og alvarleika umsáturseineltis. Þá er mikilvægt að efla lagaleg og félagsleg úrræði til að tryggja vernd og stuðning við þolendur. Rannsóknin hefur því bæði hagnýtt og fræðilegt gildi þar sem hún dregur fram þörf á breytingum í þjónustu og stefnumótun til að mæta þessum hópi með viðeigandi hætti.
This study explores the experiences and perceptions of survivors of stalking following intimate partner violence (IPV) in Iceland. The aim of the research was to shed light on the manifestations, risk factors, and consequences of such violence, as well as to examine how the legal system and social support structures respond to these cases. The research questions focused on how stalking manifests itself according to survivors’ narratives on one hand, and on how authorities and support systems address these experiences on the other hand. The study is based on a qualitative phenomenological approach, providing an in-depth understanding of survivors’ lived experiences. Interviews were conducted with individuals who had experienced stalking by a former partner following an abusive relationship. Participants were recruited using purposive and snowball sampling. A call for participants was posted on social media, and some individuals referred the study to others who met the eligibility criteria. The findings indicate that stalking can lead to long-term psychological, social, and physical consequences, including anxiety, depression, social isolation, and sleep disturbances. The main conclusions highlight the need for increased education and awareness among professionals and within society regarding the scope and severity of stalking. Furthermore, it is essential to strengthen both legal and social measures to ensure adequate protection and support for survivors. The study thus holds both theoretical and practical significance, emphasizing the need for policy and service improvements to better meet the needs of this vulnerable group.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| kkb9_0409002410meistararitgerðlokaskjal.pdf | 970,9 kB | Lokaður til...13.06.2026 | Heildartexti | ||
| ld.php.pdf | 1,52 MB | Lokaður | Yfirlýsing |