Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51710
Ritgerðin fjallar um Laxdæla sögu og sýnir hvernig klæðnaður, skart, vopn og útlit líkamans eru notuð sem tákn til að varpa ljósi á kynhlutverk, félagslega stöðu og menningarleg gildi íslensks miðaldasamfélags. Með stuðningi fræðilegra sjónarhorna Hrannar Hilmarsdóttur og Rachel Balchin er sýnt fram á að textíll og sjónræn tákn virka sem frásagnartækni sem opinbera innri hvatir, völd og siðferðileg átök persóna. Konur beita oft klæðnaði og útliti sem óbeinu valdi, á meðan karlar sýna stöðu sína með styrk, vopnum og glæsilegum búnaði. Gjafir, eins og föt og skartgripir, gegna lykilhlutverki sem tákn ástar, bandalags og virðingar. Niðurstaðan er sú að efnisleg táknfræði sögunnar er lykill að skilningi á umbreytingu persóna frá heiðnum gildum yfir í ný gildi.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| scan.pdf | 534,53 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
| Vesna LESIÐ LOKAÚTGÁFA.pdf | 579,65 kB | Lokaður til...20.02.2026 | Heildartexti |