is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51711

Titill: 
  • Börn með fjölþættan vanda. Þýðisrannsókn úr gagnagrunni sérfræðingateymis Barna- og fjölskyldustofu.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessara rannsóknar var að öðlast innsýn í hvað einkennir hóp barna sem eru með fjölþættan vanda og beita ofbeldi, og vísað hefur verið til sérfræðingateymis Barna- og fjölskyldustofu til ráðgjafar. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka fræðilega þekkingu og skilning á hvað einkenni umræddan hóp. Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru lagðar fram: Hvað einkennir þann hóp barna sem er með fjölþættan vanda og beitir ofbeldi? og Til hvaða aðgerða þarf að grípa til að til að styðja við börn með fjölþættan vanda?
    Í þessari rannsókn var notast við megindlega rannsóknaraðferð þar sem unnið var með fyrirliggjandi gögn úr gagnagrunni sérfræðingateymis Barna- og fjölskyldustofu frá árunum 2021-2024. Stuðst var við lýsandi rannsókn sem talin er gefa þýðingamiklar upplýsingar um stöðu og gagnast vel þegar öðlast á betri skilning á afmörkuðu fyrirbæri sem til skoðunar er. Unnið var með gögn úr gagnagrunni Barna- og fjölskyldustofu sem gerð höfðu verið ópersónurekjanleg. Umrædd gögn fela í sér upplýsingar um tilvísanir sem bárust til sérfræðingateymis barna með fjölþættan vanda á árunum 2021 til 2024, með vísan í lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 .
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær, þegar litið er til einkenna barna með fjölþættan vanda, að þau eru í flestum tilvikum með fleiri en eina greiningu. Mörg barnanna eru þolendur ofbeldis og hópur drengja þar nokkuð fjölmennari. Í flestum tilvikum hafa drengir orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi. Í tilviki stúlkna sem hafa orðið hafa fyrir ofbeldi er algengast að þær hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. Meirihluti barnanna er einnig gerandi ofbeldis. Þegar vímuefnanotkun hópsins er skoðuð sést að minnihluti barnanna neytir slíkra efna. Áberandi eru niðurstöður um búsetuform barnanna en þegar sérfræðingateyminu barst beiðni voru þau í mörgum tilvikum búsett inn á eigin heimili en þegar úrvinnslu og skoðun teymisins lauk voru þau í flestum tilvikum búsett utan heimilis í öðrum vistunarúrræðum.

Samþykkt: 
  • 28.11.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51711


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Svandís Lilja Jónasdóttir. MA ritgerð.pdf1,11 MBLokaður til...01.12.2028HeildartextiPDF
Svandís Lilja-Yfirlýsing.pdf1,49 MBLokaðurYfirlýsingPDF