is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51713

Titill: 
  • „Á milli hjartans og fagmannsins“: Seigla í starfi félagsráðgjafa í barnavernd á landsbyggðinni
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin miðar að því að varpa ljósi á hvernig félagsráðgjafar í barnavernd á landsbyggðinni skilgreina og upplifa seiglu í starfi sínu og hvaða þættir hafa áhrif á hana. Lögð er áhersla á hvernig persónulegir eiginleikar, fagleg viðhorf og aðstæður í starfsumhverfi vinna saman að því að móta seiglu félagsráðgjafa. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig félagsráðgjafar nýta persónuleg bjargráð og fagleg úrræði til að viðhalda jafnvægi, fagmennsku og trú á tilgang starfsins. Rannsóknin byggist á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru 6 hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við félagsráðgjafa sem höfðu að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu í barnavernd. Gögnin voru greind með þemagreiningu sem leitast við að varpa ljósi á sameiginleg mynstur, merkingu og túlkun viðmælenda.
    Niðurstöðurnar endurspegla markmið rannsóknarinnar með því að varpa ljósi á hvernig félagsráðgjafar finna jafnvægi milli faglegra krafna og tilfinningalegs álags í daglegu starfi. Þær sýna að seigla félagsráðgjafa birtist sem faglegt ferli sem þróast í gegnum reynslu, sjálfsskoðun og stuðning. Hún byggist á sterkum faglegum gildum, trú á möguleika til breytinga og hæfni til að finna merkingu í starfi þrátt fyrir álag og takmörkuð úrræði. Stuðningur, samstaða og handleiðsla reynast lykilþættir í því að efla seiglu en miklar tilfinningalegar kröfur og skortur á úrræðum geta dregið úr henni.
    Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að skapa faglegt vinnuumhverfi sem styður við seiglu félagsráðgjafa og stuðlar að sjálfbæru og faglegu starfi í barnavernd. Slíkt umhverfi krefst menningar þar sem ígrundun, stuðningur og samvinna eru hluti af daglegum starfsþáttum sem gerir félagsráðgjöfum kleift að viðhalda heilbrigðum faglegum mörkum og tryggja gæði þjónustunnar til lengri tíma.
    Lykilorð: seigla, félagsráðgjöf, barnavernd, landsbyggð, fagmennska, stuðningur, bjargráð, handleiðsla.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this study is to explore how social workers in child protection services in rural Iceland define and experience resilience in their professional practice, and which factors influence it. The study focuses on how personal characteristics, professional attitudes, and workplace conditions interact to shape resilience among social workers. The aim is to examine how social workers use personal coping strategies and professional resources to maintain balance, professionalism, and a sense of purpose in their work.
    The research is based on a qualitative methodology, using semi-structured individual interviews with social workers who had at least three years of experience working in child protection. The data were analysed using thematic analysis to identify shared patterns, meanings, and interpretations among participants.
    The findings address the aim of the study by highlighting how social workers strive to balance professional demands and emotional strain in their daily work. They show that resilience is experienced as a professional process that develops through experience, self-reflection, and support. It is grounded in strong professional values, belief in the potential for change, and the ability to find meaning in work despite high demands and limited resources. Support, collegial solidarity, and supervision were identified as key factors that enhance resilience, while emotional pressure and lack of resources may weaken it.
    The results emphasize the importance of creating a professional work environment that supports social workers’ resilience and promotes sustainable and ethical practice in child protection. Such an environment requires a culture where reflection, collaboration, and support are integrated into everyday practice, enabling social workers to maintain healthy professional boundaries and ensure long-term quality of service.
    Keywords: resilience, social work, child protection, rural areas, professionalism, support, coping strategies, supervision.

Samþykkt: 
  • 1.12.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51713


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA rannsókn_Seigla barnaverndarstarfsmanna á landsbyggðinni_hgg34_Hanna Guðrún Gestsdóttir.pdf822,44 kBLokaður til...15.06.2026HeildartextiPDF
Yfirlýsing - pdf.pdf104,32 kBLokaðurYfirlýsingPDF