is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51735

Titill: 
  • "Að vaxa úr grasi í skugga vímu" Upplifun og reynsla einstaklinga á að hafa alist upp hjá foreldri með vímuefnaröskun
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn er lokaverkefni til MA-gráðu í félagsráðgjöf til starfsréttinda við Háskóla Íslands. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun og reynslu einstaklinga sem ólust upp hjá foreldri með vímuefnaröskun og skoða hvernig slík reynsla hefur áhrif á líðan, tengsl og aðlögun á fullorðinsárum. Æska barna sem búa við vímuefnaneyslu foreldris einkennist oft af óöryggi, ófyrirsjáanleika og skorti á tilfinningalegri nærveru, sem getur haft áhrif á sjálfsmynd og traust í nánum samböndum síðar á ævinni.
    Í rannsókninni var beitt eigindlegri, fyrirbærafræðilegri aðferð. Tekin voru átta hálfstöðluð viðtöl við konur á aldrinum 20 til 35 ára sem ólust upp hjá foreldri eða foreldrum með vímuefnaröskun. Viðmælendur lýstu meðal annars vanrækslu, snemmkominni ábyrgð og hlutverkaskekkju innan fjölskyldunnar, ásamt tilfinningum á borð við kvíða, skömm og einmanaleika. Jafnframt kom fram að verndandi þættir, eins og stuðningur utan heimilis, tengsl við fullorðna sem veittu þeim öryggi, og þátttaka í skóla og tómstundum, gátu mildað áhrif aðstæðnanna og stuðlað að seiglu.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vímuefnaröskun foreldra hefur víðtæk og langvarandi áhrif á fjölskyldukerfið, þar sem mörk veikjast, hlutverk verða óljós og samskiptamynstur raskast. Á sama tíma benda frásagnir þátttakenda til þess að snemmtækur og samþættur stuðningur geti skapað grundvöll fyrir bata, aukið tilfinningalega virkni og eflt tengsl. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi áfallamiðaðrar þjónustu og þverfaglegrar samvinnu sem nær til barns, foreldra og umhverfis, til að rjúfa skaðleg mynstur og efla farsæld fjölskyldna.
    Lykilorð: vímuefnaröskun, vímuefni, fjölskyldur, börn, seigla, félagsráðgjöf

  • Útdráttur er á ensku

    This research is a final project for an MA degree in Social Work for professional rights at the University of Iceland. The main objective of the research is to explore the experiences of individuals who grew up with a parent with a substance use disorder and to examine how such experiences affect their well-being, relationships, and adjustment into adulthood. The childhood of children living with a parent's substance use is often characterized by insecurity, unpredictability, and a lack of emotional presence, which can affect their self-image and trust in close relationships later in life.
    The study employed a qualitative, phenomenological method. Eight semi-structured interviews were conducted with women aged 20 to 35 who grew up with a parent or parents with a substance use disorder. The interviewees described, among other things, neglect, premature responsibility, and role confusion within the family, along with feelings such as anxiety, shame, and loneliness. It also emerged that protective factors, such as support outside the home, connections with adults who provided them with security, and participation in school and leisure activities, could mitigate the effects of the circumstances and promote resilience.
    The findings of the study show that parental substance use disorder has extensive and long-lasting effects on the family system, where boundaries weaken, roles become unclear, and communication patterns are disrupted. At the same time, the participants' narratives suggest that early and integrated support can create a foundation for recovery, increase emotional functioning, and strengthen relationships. The research underscores the importance of trauma-informed services and interdisciplinary collaboration that includes the child, parents, and their environment, to break harmful patterns and promote the well-being of families.
    Keywords: substance use disorder, substance use, families, children, resilience, social work

Samþykkt: 
  • 17.12.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51735


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA-ritgerð.pdf791,84 kBLokaður til...13.06.2026HeildartextiPDF
Yfirlýsing.jpeg621,79 kBLokaðurYfirlýsingJPG