Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/51819
„Að vera partur af einhverju stærra“ Starfsánægja og hollusta starfsfólks með langan starfsaldur í þjónustugeiranum
Vinnustaðamenning gegnir mikilvægu hlutverki í því hvernig starfsfólk upplifir starfið sitt, líðan í vinnu og tengsl við vinnustaðinn. Sérstaklega á þetta við í þjónustugeiranum þar sem dagleg samskipti, samstarf og félagslegt samhengi eru stór hluti starfsins. Rannsóknin fjallar um upplifun starfsfólks með langan starfsaldur af vinnustaðamenningu og starfsánægju, með áherslu á hvernig menning er mótuð, ræktuð og viðhaldið í daglegu starfi. Jafnframt er skoðað hvaða þættir stuðla að því að starfsfólk velur að starfa lengi á sama vinnustað.
Eigindleg aðferð var notuð og tekin voru hálfopin viðtöl við átta einstaklinga sem höfðu starfað á sama vinnustað í 14–37 ár innan þjónustugeirans. Viðmælendur lýstu upplifun sinni af starfinu, samskiptum, forystu og breytingum í gegnum starfsferilinn. Gögnin voru greind með þemagreiningu og leiddu í ljós fjögur meginþemu: stjórnendur og traust, vinnustaðamenning og samskipti, starfsánægja og vellíðan, og þróun, breytingar og starfsaldur.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að starfsánægja og langvarandi hollusta tengjast fyrst og fremst félagslegum og menningarlegum þáttum vinnuumhverfisins. Sýnilegir og stuðningsríkir stjórnendur skipta miklu máli fyrir traust, öryggi og jákvæða upplifun af starfi. Félagsleg tengsl, samheldni og góður starfsandi stuðluðu að vellíðan og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Starfsánægja tengdist einnig upplifun af merkingu og tilgangi í starfi. Þá kom fram að breytingar voru upplifaðar með ólíkum hætti eftir því hvernig þær voru kynntar og studdar, og að langur starfsaldur gat styrkt seiglu og aðlögunarhæfni þegar vinnustaðamenning var traustvekjandi.
Rannsóknin veitir innsýn í hvernig vinnustaðamenning mótast yfir langan tíma og hvernig hún styður við vellíðan, starfsánægju og langvarandi tengsl starfsfólks við vinnustaðinn. Niðurstöðurnar sýna að hollusta starfsfólks byggist síður á formlegum umbunum en á upplifun af trausti, tilheyrandi vinnustaðamenningu og merkingarbæru starfi sem mótast í daglegum samskiptum og forystu. Þessar niðurstöður geta nýst stjórnendum og mannauðsfólki við að móta og viðhalda vinnuumhverfi sem styður vellíðan starfsfólks og eflir slík tengsl.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Tara Ósk Lokaritgerð.pdf | 886,59 kB | Locked Until...2026/02/20 | Complete Text | ||
| Yfirlýsing.jpg | 2,35 MB | Locked | Declaration of Access | JPG |