is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51821

Titill: 
  • Konur, karlar og kynjahlutverk: Þróun kynjaskiptingar á íslenskum vinnumarkaði frá 1991-2024
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn er þróun kynjaskiptingar á íslenskum vinnumarkaði greind og tengsl hennar við kynbundinn tekju- og launamun. Þrátt fyrir miklar framfarir í jafnréttismálum og aukna atvinnuþátttöku kvenna á síðustu áratugum er tekju- og launamunur karla og kvenna enn til staðar. Rannsóknin fjallar um tengsl kynjaskiptingar atvinnugreina og starfsstétta við kynbundinn tekju- og launamun og metur hvort þessi skipting geti skýrt hluta hans. Ein af megin niðurstöðum rannsóknarinnar leiðir líkur að því að tekju- og launamunur skýrist að hluta af kynjaskiptum vinnumarkaði.
    Greiningin byggir á gögnum Hagstofu Íslands um íslenskan vinnumarkað yfir tímabilið 1991-2024. Kynjaskipting er skoðuð bæði eftir atvinnugreinum og starfsstéttum auk þess sem þróun kynbundins tekju- og launamunar er greind. Notast er við Duncan aðskilnaðarvísitölu til að meta umfang kynjaskiptingar yfir tíma auk gagnstæðagreiningar (e. \textit{counterfactual analysis}) til að kanna áhrif breytinga á drefingu karla og kvenna og launaþróun innan atvinnugreina og starfsstétta. Einnig er íslenskur vinnumarkaður settur í alþjóðlegt samhengi með samanburði við Norðurlönd og önnur Evrópulönd.
    Þá kemur í ljós að Norðurlöndin deila líkri kynjaskiptingu þar sem hún er mælist hærri eftir starfsstéttum en atvinnugreinum.
    Ísland mælist ofarlega meðal Evrópulanda þegar kemur að kynjaskiptingu milli atvinnugreina en þegar kemur að starfsstéttum er Ísland fyrir miðju.
    Niðurstöðurnar sýna að íslenskur vinnumarkaður hefur orðið hlutfallslega jafnari fyrir konur og karla frá upphafi tíunda áratug síðustu aldar en kynjaskipting er þó enn rótgróin. Þegar litið er til atvinnugreina hefur kynjaskipting dregist saman hins vegar hefur kynjaskipting meðal starfsstétta staðið í stað.Kynbundinn tekju- og launamunur hefur dregist saman en er áfram til staðar og tengist meðal annars viðvarandi kynjaskiptingu vinnumarkaðarins. Rannsóknin sýnir að launamunur er margþætt fyrirbæri og að kynjaskipting vinnumarkaðarins er einn mikilvægur þáttur í stærri mynd.

Samþykkt: 
  • 9.1.2026
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51821


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Konur, karlar og kynjahlutverk.pdf3,21 MBLokaður til...20.02.2026HeildartextiPDF
yfirlysing.pdf1,52 MBLokaðurYfirlýsingPDF