is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51824

Titill: 
  • Þróun viðskipta- og tekjulíkana í tónlistariðnaðinum: Frá hljómplötum til streymis
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tónlistariðnaðurinn hefur tekið miklum breytingum á síðustu áratugum, einkum vegna stafrænnar þróunar sem hefur umbreytt því hvernig tónlist er framleidd, dreift og neytt. Markmið þessarar ritgerðar er að greina hvernig viðskipta- og tekjulíkön í tónlistarheiminum hafa þróast frá hefðbundnum líkönum stórra hljómplötufyrirtækja yfir í ný líkön sjálfstæðra listamanna. Byggt er á fræðilegum líkönum, þar á meðal Business Model Canvas, kenningum um virði, þjónustuvæðingu og stafrænum vistkerfum. Gerð er grein fyrir breytingum á tekjustreymum, frá vörusölu og miðasölu yfir í áskriftir, og sýnt hvernig þessar breytingar hafa minnkað inngönguhindranir en jafnframt aukið ábyrgð listamanna á eigin rekstri. Tilvikagreining á sjálfstæðum listamanni styður niðurstöðurnar og sýnir hvernig ný tækni, samfélagsmiðlar og fjölbreytt dreifileiðakerfi gera listamönnum kleift að móta sjálfbær viðskipta- og tekjulíkön. Helstu niðurstöður benda til þess að stafræna umbreytingin hafi bæði aukið sjálfstæði listamanna og gert rekstrarumhverfið auðveldara, þar sem samspil vettvanga, reiknirita og tengsl við hlustendur hefur orðið miðlægt í virðissköpun og tekjuöflun. Ritgerðin varpar þannig ljósi á þróun tónlistarrekstrar í breyttu stafrænu umhverfi og þau tækifæri og áskoranir sem listamenn í nútímanum standa frammi fyrir.

Samþykkt: 
  • 12.1.2026
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51824


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
throun vidskipta- og tekjulikana i tonlistaridnadi lokaeintak.pdf629,87 kBLokaður til...20.02.2026HeildartextiPDF
yfirlysing_OBH.pdf1,51 MBLokaðurYfirlýsingPDF