is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51886

Titill: 
  • „Það er kalt á toppnum“: Upplifun íslenskra kvenna af framkvæmdastjórnarhlutverki í karllægum fyrirtækjum og atvinnugreinum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á helstu áskoranir og tækifæri sem konur standa frammi fyrir í framkvæmdastjórastöðum íslenskra fyrirtækja, þar sem karlar eru í meirihluta stjórnenda og starfsmanna. Sérstök áhersla var lögð á hvernig konur upplifa að viðhalda stöðu sinni og þá hvort þær upplifi mun í þeim efnum samanborið við karlkyns stjórnendur. Einnig var skoðað hvernig fyrirtækin geta stutt við konur til að auka fjölbreytileika og jafnrétti í æðstu stjórnunarstöðum. Rannsóknin byggir á eigindlegri fyrirbærafræðilegri nálgun og gögnum sem var aflað með fimm hálfopnum djúpviðtölum við núverandi og fyrrverandi framkvæmdastýrur í karlægum atvinnugeirum. Eitt af því sem niðurstöður rannsóknarinnar leiddi í ljós var að þátttakendurnir höfðu ekki markvisst sóst eftir framkvæmdastjórastöðu heldur verið hvattar, beðnar eða valdar. Einnig kom fram að þrátt fyrir að konurnar nytu faglegs trausts innan sinna skipulagsheildar stóðu þær jafnframt frammi fyrir ósýnilegum, kerfislægum og ómeðvituðum hindrunum, einkum utan skipulagsheildanna. Þær upplifðu að þær þyrftu oftar að sanna hæfni sína og hefðu síður aðgang að óformlegum tengslanetum. Lykilþættir í því að halda stöðu sinni og ná árangri í starfi reyndust vera hæfni og seigla. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi markviss stuðnings og aukinnar vitundar til að tryggja
    jafnrétti í æðstu stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja.

Samþykkt: 
  • 13.1.2026
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51886


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
„Það er kalt á toppnum“ .pdf625,12 kBLokaður til...15.06.2026HeildartextiPDF
yfirlysing.pdf1,46 MBLokaðurYfirlýsingPDF