Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51901
Húsnæðismarkaðurinn gegnir lykilhlutverki í íslensku efnahagslífi þar sem húsnæði er stærsta fjárfesting flestra heimila. Á tímabilinu 2015– 2025 varð mikil hækkun íbúðaverðs samhliða verulegum breytingum i peningastefnu Seðlabanka Íslands, þar sem stýrivextir fóru úr sögulegu lágmarki í eitt hæsta stig síðari tíma. Markmið ritgerðarinnar er að greina áhrif stýrivaxta á þróun íbúðaverðs og meta hvort vaxtabreytingar skýri meginþróunina eða hvort aðrir þættir hafi afgerandi áhrif.
Til að svara rannsóknarspurningunni er beitt blandaðri aðferðafræði. Annars vegar er
megindleg greining á þróun stýrivaxta, markaðsvaxta íbúðalána og vísitölu markaðsverðs íbúðarhúsnæðis þar sem fylgni þessara stærða er skoðuð yfir tíma. Hins vegar er stuðst við eigindlegt viðtal við sérfræðing í banka til að dýpka skilning á áhrifum vaxtaákvarðana á lánskjör, greiðslubyrði heimila og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði.
Niðurstöður sýna að þróun íbúðaverðs á húsnæðismarkaði á Íslandi á tímabilinu 2015–
2025 verður ekki skýrð með stýrivöxtum einum saman. Þrátt fyrir vaxtahækkanir hélt
íbúðaverð áfram að hækka á tímabilinu, sem bendir til þess að aðrir þættir eins og
framboðsskilyrði, fólksfjölgun og opinber úrræði hafi haft veigamikil áhrif og dregið úr
langtímaáhrifum peningastefnunnar á húsnæðisverð. Vaxtabreytingar eru væntanlega
mikilvægur áhrifavaldur, en verðþróunin mótast af samspili peningastefnu,
framboðsskorts, lýðfræðilegra þátta og ytri áfalla. Ritgerðin undirstrikar því mikilvægi
heildrænnar nálgunar við greiningu húsnæðismarkaðarins.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Áhrif stýrivaxta Seðlabankans á þróun íbúðaverðs á Íslandi á árunum 2015- 2025.pdf | 938,48 kB | Lokaður til...20.02.2026 | Heildartexti | ||
| yfirlysing-editable.pdf | 1,49 MB | Lokaður | Yfirlýsing |