Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5203
Með ritgerð þessari er gerð tilraun til þess að skrá og kortleggja vettvangsferð grunnskólanema í fyrirtæki á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða viðhorf grunnskólakennara, nemenda og talsmanns fyrirtækis til vettvangsferða grunnskólanema í fyrirtæki og athuga hvort og þá hvernig skólarnir geta nýtt sér heimsóknina til þess að efla kennslu í einstökum námsgreinum. Niðurstöður þessarar rannsókner eru fengnar með vettvangsathugun og viðtölum við þátttakendur sem fóru í vettvangsferð í álver Alcoa Fjarðarál 25. nóvember 2008. Í niðurstöðunum er leitast við að varpa ljósi á hugmyndir þátttakenda um gildi og tilgang vettvangsferða og mikilvægi slíkra ferða fyrir kennslu námsgreina í grunnskóla. Niðurstöður sýna að vettvangsferð af því tagi sem fylgst var með í rannsókninni getur verið gagnleg leið sem eflir fjölbreytta kennsluhætti, til þess fallin að efla skilning nemenda og að kynna þeim starfsemi fyrirtækja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
pd_fixed.pdf | 1,34 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |