is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/52091

Titill: 
  • Hönnun og þróun sjálfvirks sorpmóttökukerfis með vigtun og aðgangsstýringu
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um hönnun og hugbúnaðarútfærslu á frumgerð sjálfsafgreiðslu í sorpmóttöku. Kerfið sameinar vigtun ökutækja, auðkenningu notanda, aðgangsstýringu og gagnaskráningu í SCADA-kerfinu Ignition. Vegna tímamarka voru engar raunverulegar vélbúnaðaruppsetningar framkvæmdar. Í stað þess voru öll merki,
    vigtarmælingar og auðkenningar hermdar. SQL-gagnagrunnur var notaður til að skrá brúttó-, tara- og nettóþyngd, ásamt notenda- og atviksupplýsingum. HMI-viðmót var hannað til að leiða ökumann í gegnum allt ferlið og rekstraraðili hefur aðgang að viðvörunum og bilanagreiningu. Prófanir voru framkvæmdar með at-
    burðarhermun og náðu bæði yfir venjulegt ferli og frávik. Niðurstöðurnar sýna að vinnsluflæði, útreikningar, viðvörunarhugsun og gagnaskráning virka áreiðanlega í þróunarumhverfi. Frumgerðin gefur til kynna að SCADA lausn geti stutt aukna skilvirkni og rekjanleika. Frekari prófanir með raunverulegum búnaði eru hins vegar nauðsynlegar til að staðfesta endanlega virkni kerfisins.

Samþykkt: 
  • 4.2.2026
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/52091


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sorpafgreiðslukerfi.pdf1,57 MBLokaður til...20.02.2026HeildartextiPDF
yfirlysing_um_medferd_verkefnis_eej.php.pdf1,51 MBLokaðurYfirlýsingPDF