is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5224

Titill: 
  • Eru stjórnendur hæfari til að taka ákvarðanir að lokinni stjórnendaþjálfun? Áhrif stjórnendaþjálfunar á persónulegt og faglegt líf stjórnandans
Námsstig: 
  • Meistara
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Þessi meistararitgerð leitar svara við rannsóknarspurningunni Bætir stjórnendaþjálfun ákvarðanatökur stjórnenda? Markmið rannsóknarinnar er að kanna með eigindlegri viðtalsaðferð hvort stjórnendur upplifðu í kjölfar stjórnendaþjálfunar að þjálfunin hafi bætt ákvörðunartökuferli þeirra og markmiðasetningu.
    Til að leita svara við spurningunni voru tekin viðtöl við tíu stjórnendur íslenskra fyrirtækja sem höfðu farið í stjórnendaþjálfun. Til að fá sem fjölbreyttast úrtak var ákveðið að 1) ekki hefðu allir sama markþjálfa né 2) ynnu hjá sama fyrirtæki. Því voru valdir stjórnendur frá sex mismunandi fyrirtækjum og sjö mismunandi markþjálfum.
    Helstu niðurstöður benda til þess að í kjölfar stjórnendaþjálfunar hafa gæði ákvarðanatöku stjórnenda stóraukist og var það yfirgnæfandi meirihluti sem taldi það. Aðrar niðurstöður voru að markmiðasetning hefur orðið markvissari og að stjórnendur ná frekar markmiðum sínum í kjölfar stjórnendaþjálfunar.
    Lykilorð: Markþjálfun, stjórnendaþjálfun, ákvarðanatökur, markmiðasetning.

Samþykkt: 
  • 12.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5224


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Master Steinunn 10 maí.pdf875.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna