is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5274

Titill: 
  • Laugardalurinn sem áfangastaður íþróttaferðamennsku
Titill: 
  • Laugardalurinn as a destination for sport-tourism
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsóknarvinna á Laugardalnum í Reykjavík sem áfangastað íþróttaferðamennsku er löngu tímabær en Laugardalurinn hefur að geyma stærstu og bestu íþróttaaðstöðu sem í boði er á Íslandi. Fjöldinn allur af alþjóðlegum íþróttaviðburðum hefur verið haldin í Laugardalnum í gegnum árin. Í þessari ritgerð eru ýmsir þættir sem varða íþróttaferðamennsku í Laugardalnum skoðaðir líkt og staða Laugardalsins, framtíðarmöguleikar hans og möguleikar á frekari uppbyggingu hvað varðar innviði. Með fræðilegri nálgun ásamt viðtölum við aðila tengda íþróttum, alþjóðlegu mótshaldi, kynningarmálum og ferðaþjónustu hefur rannsakandi komist að eftirfarandi þáttum: Í Laugardalnum er til staðar hágæða íþróttaaðstaða, í mörgum tilfellum á heimsmælikvarða. Erlendir þátttakendur í alþjóðlegum íþróttaviðburðum hafa lofað aðstöðuna og jafnvel sóst eftir því að fá að koma í Laugardalinn eingöngu til þess að nýta æfingaaðstöðuna sem hann hefur uppá að bjóða. Efnahagskreppan hefur augljóslega sett strik í reikninginn um sinn varðandi frekari uppbyggingu í Laugardalnum en þó eru margar hugmyndir á teikniborðinu varðandi uppbyggingu innviða í dalnum. Aukning hefur orðið á komu erlendra þátttakenda á alþjóðlega íþróttaviðburði í Laugardalnum en hún hefur kannski ekki orðið eins mikil og vonast hefur verið eftir.
    Með aukinni og skipulegri kynningu á Laugardalnum sem áfangastaðar íþróttaferðamennsku má auðveldlega gera hann að sterkara aðdráttarafli fyrir íþróttaferðamennsku. Með því að hanna ramma byggðan á kenningum Gammon og Robinson (2004) yfir þá íþróttaaðstöðu sem Laugardalurinn hefur uppá að bjóða fyrir mismunandi hópa íþróttaferðamanna má öðlast heilsteypta sýn á möguleika Laugardalsins sem áfangastaðs íþróttaferðamennsku. Þessi rammi ætti einnig að hjálpa til við framtíðarmarkaðssetningu svæðisins.

Samþykkt: 
  • 14.5.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/5274


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS Lokaeintak PDF 3.pdf812.37 kBLokaðurHeildartextiPDF