Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5304
Líknarmeðferð er læknismeðferð sem lítur á manneskjuna heildrænt og sinnir líkamlegum, félagslegum, sálrænum og andlegum þörfum hennar. Alverkur kallast það þegar manneskjan þjáist líkamlega og andlega, félagslega og tilfinningalega. Hinn andlegi þáttur felur í sér leit manneskjunnar að tilgangi og merkingu í lífi sínu en einnig tengsl hennar við aðra, við umhverfi sitt og það sem er æðra. Andleg umönnun er ekki aðeins mikilvægur þáttur líknarmeðferðar, hún er óaðskiljanlegur hluti hennar. Hún er nauðsynleg fyrir sjúklinginn, fyrir aðstandendur hans og jafnframt fyrir starfsfólkið sem vill veita bestu mögulegu umönnunina. Nærvera sem felur í sér nánd og hlustun eru lykilatriði andlegrar umönnunar.
Maðurinn er sköpun Guðs og verður aðeins skilinn í ljósi Guðs. Kristinn mannskilningur birtist í hugmyndafræði líknarmeðferðar, maðurinn er líkami, andi og sál og ábyrgur ráðsmaður Guðs og ber að gæta að allri sköpun hans, einnig meðbræðrum sínum og systrum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Olof_Margret_BA-ritgerd.pdf | 682.41 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |