Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5353
Stuðningur við jákvæða hegðun er hegðunarstjórnunarkerfi sem notað er í skólastarfi til þess að hafa áhrif á hegðun nemenda til hins betra. Niðurstöður úr rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrifum kerfisins hafa sýnt fram á að vandamálahegðun hjá nemendum hafi minnkað í kjölfar þess sem Stuðningur við jákvæða hegðun hófst og að jákvæð hegðun hafi aukist hjá einstaklingum í áhættuhópum. Í þremur
grunnskólum í Reykjanesbæ er nú í gangi innleiðing á Stuðningi við jákvæða hegðun. Í þessari skýrslu er farið yfir niðurstöður mælinga sem gerðar voru vorið 2010 á börnum í miðstigi (4. – 7. bekk) í þessum þremur grunnskólum. Eru þessar mælingar hluti af stærri rannsókn sem byrjaði árið 2008 og er enn í fullum gangi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sunna Arnardottir.pdf | 781.2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |