is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/547

Titill: 
  • Tónlist alla daga : samþætting tónlistar við almenna kennslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni er leitað svara við því hvort samþætta eigi tónlist við aðrar námsgreinar í grunnskólum og í framhaldi af því, hvaða leiðir eru færar til þess. Víða er skortur á tónmenntakennurum og af því leiðir að margir nemendur fara á mis við þá kosti sem tónlist og tónmennt hafa upp á að bjóða.
    Í fyrri hluta ritgerðarinnar er sjónum beint að aðferðum sem þróaðar hafa verið við tónlistarkennslu og fjallað er um mikilvægi tónlistaruppeldis og áhrif þess á námsárangur auk líffræðilegra og félagslegra áhrifa á nemendur. Í síðari hluta ritgerðarinnar er gerð grein fyrir samþættingu námsgreina, kostum hennar og göllum. Sérstaklega er hugað að hagnýtum leiðum til að samþætta tónlist öðrum námsgreinum.
    Niðurstaðan er sú að til þess eru margar leiðir færar. Mikið úrval er til af tónlist sem tengja má öðru námsefni grunnskólans. Námsefni hefur líka verið þróað til að stuðla að samþættingu sem felur í sér samvinnu tónlistarkennara og umsjónarkennara. Hugmyndaflug og rétt viðhorf grunnskólakennara er það sem þarf til að nemendur njóti tónlistar alla daga.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/547


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
tonlistalladaga.pdf338.47 kBTakmarkaðurTónlist alla daga - heildPDF
tonlistalladaga_e.pdf66.41 kBOpinnTónlist alla daga - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
tonlistalladaga_h.pdf122.44 kBOpinnTónlist alla daga - heimildaskráPDFSkoða/Opna
tonlistalladaga_u.pdf74.57 kBOpinnTónlist alla daga - útdrátturPDFSkoða/Opna