Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/5530
Í þessu verkefni verður kannað hvernig námskeið FHG geta nýst kennurum og nemendum
miðstigs grunnskóla, 5. til 7. bekk, með hliðsjón af aðalnámskrá í náttúrufræði og
umhverfismennt og þá aðallega kaflann sem lýtur að lífvísindum. Einnig verður athugað
hvort möguleikar séu á frekari verkefnum, þrautum og fræðandi leikjum sem nemendur og
almennir gestir geta leyst á skemmtilegan og fróðlegan hátt á meðan á heimsókn í garðinn
stendur. Efni verkefnisins er höfundi hugleikið enda hef ég starfað í Húsdýragarðinum frá
árinu 1996. Fyrst í helgarvinnu sem aðstoðardýrahirðir með menntaskóla og háskóla og í
fullu starfi í fræðsludeild FHG frá 2002. Starfið er fjölbreytt og mér er ljóst að návist við
dýr og þá náttúru sem er að finna í Laugardalnum er kærkomin í hversdagsleika
þéttbýlisbúa. Sjálf hef ég verið viðloðandi hestamennsku frá unga aldri og hef því ávallt
haft dýr í kringum mig og að auki við hrossin, hund, kött og páfagauka. Þá eru ferðalög
innanlands ofarlega á lista yfir áhugamál og er þá ýmist ferðast akandi, gangandi eða
ríðandi. Náttúra Íslands kemur ferðamanninum mér sífellt á óvart og í hverri ferð
uppgötvast eitthvað nýtt, fallegt og spennandi.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BS- unnur.pdf | 39.49 MB | Open | Heildartexti | View/Open |