Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5711
Ráðning starfsmanns er ferli sem gjarnan er kostnaðarsamt og tímafrekt.
Mikilvægt er að forsvarsmenn fyrirtækja og þeir sem sjá um ráðningar í
fyrirtækjum vandi vel til verka þegar farið er í gegnum ráðningarferlið. Aukinn
kostnaður felst í því þegar auglýsa þarf starf á nýjan leik, fara í gegnum
valferlið, ráða og þjálfa nýjan einstakling.
Margvíslegar aðferðir eru til við öflun umsækjenda um starf og mat á þeim
umsækjendum sem sækja um. Rannsóknir hafa leitt í ljós að matsaðferðirnar
eru misáreiðanlegar og því misjafnlega til þess fallnar að skila þeirri niðurstöðu
sem ætlast er til.
Nýliðaþjálfun er mikilvægt framhald af ráðningu í starf. Taka þarf á móti
nýjum starfsmanni og koma honum inn í starfið og allt sem því tilheyrir á sem
skilvirkastan hátt og skemmstum tíma.
Þegar litið er á helstu niðurstöður þá kemur í ljós að flest fyrirtækjanna eru að
nýta sér fræðin að einhverju leyti við ráðningar, starfsmannaval og
nýliðaþjálfun. Einnig kom í ljós að stærri fyrirtækin voru markvissari í vinnslu
þessara mála heldur en þau sem minni eru. Hafa ber þó í huga við lestur
niðurstaðna rannsóknarinnar að úrtakið náði aðeins til fimm bókhaldsstofa.
Lykilorð: Bókhaldsstofur – ráðningar – starfsmannaval – nýliðaþjálfun
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun.pdf | 652.81 kB | Opinn | heild | Skoða/Opna | |
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - efnisyfirlit.pdf | 23.17 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - heimildaskrá.pdf | 44.18 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði - ráðningar og nýliðaþjálfun - útdráttur.pdf | 21.54 kB | Opinn | útdráttur | Skoða/Opna |