Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5832
Viðfangsefni þessa verkefnis er skipt upp í tvo þætti. Annars vegar er fjallað um lög og reglugerðir sem fjalla um jafnrétti kynjanna og þá baráttu sem háð hefur verið í að ná fram jöfnum rétti karla og kvenna. Enn fremur verður fjallað um kynhlutverkin, hvernig þau mótast og kenningar um það hvernig þau viðhaldast í þjóðfélaginu. Hins vegar verður birt rannsókn á myndefni námsbóka á yngsta stigi grunnskóla. Myndefnið var athugað með innihaldsgreiningu til að skoða birtingarmynd kynjanna í myndum námsbóka.
Athugunin náði yfir 54 bækur sem gefnar voru út á tímabilinu 1999 til 2010 og beindist að því hvort myndefni námsbóka sýndi kynin í stöðluðum kynhlutverkum. Við greiningu myndanna var stuðst við spurningar sem settar voru fram til að komast sem næst markmiðinu.
Rannsóknin leiddi í ljós að námsbækur sýna jafna stöðu kynjanna. Kynin eru nokkuð jafnt sýnd í stöðluðum kynhlutverkum og í hlutverkum sem tilheyra hinu kyninu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni tilbúið.pdf | 880,29 kB | Lokaður | Jafnrétti kynjanna og birtingarmynd þess í námsbókum á yngsta stigi grunnskóla-heild |