Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/43267
Markmið fyrirtækisins KAPP ehf er að verða leiðandi í
umhverfismálum. Því kom upp hugmynd að þessu verkefni
en markmið þess er að endurhanna og velja helstu íhluti fyrir
minnstu ískrapavélina sem KAPP ehf framleiðir, Optim-Ice
BP-105. Skipta á út kælimiðlunum R-404A og R-449A en
þeir eru mengandi. Í stað þeirra verður náttúrulegi kælimið-
illinn, koltvíoxíð, notaður en hann er mun umhverfisvænni.
Fjórar hugmyndir komu til greina við endurhönnun á vélinni.
Hugmyndin sem varð fyrir valinu er byggð á booster kerfi og
hefur allt að 52,7% betri nýtni en núverandi vél. Einnig er
fjallað um þá íhluti sem hafa verið valdir fyrir vélina. Fram-
leiðslukostnaður á endurhönnuninni er áætlaður vera allt að
50-60% hærri en á núverandi vél en á móti verður orkunotk-
un minni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni (6).pdf | 14.48 MB | Lokaður til...01.01.2027 | Heildartexti | ||
Beidni-um-lokun-lokaverkefnis Þorgeir_undirskrifað.pdf | 128.76 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |