is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12423

Titill: 
  • Liðleiki og teygjur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Liðleiki er einn þáttur af líkamlegu hreysti sem þarf að þjálfa upp og viðhalda með teygjuæfingum en hann er getan til að framkvæma hreyfingar í gegnum fullan hreyfiferil liðamóta. Vöðvar, sinar, liðbönd og taugar sinna ákveðnum hlutverkum við framkvæmd hreyfinga og eru áhrifaþættir liðleika margir en sá algengasti er vöðvaspenna sem leiðir gjarnan til meiðsla. Hægt er að koma í veg fyrir slíka vöðvaspennu og meiðsli með lengingu vöðva í teygjuæfingum. Þær teygjuæfingar sem stundaðar eru flokkast eftir hverskonar liðleika þær vinna út frá. Flokkarnir nefnast kyrrstöðuteygjur, virkar teygjur, óvirkar teygjur, hreyfiteygjur, fjaðrandi teygjur og PNF teygjur. Í kyrrstöðuteygjum og virkum teygjum er stöðu haldið án aðstoðar en í óvirkum teygjum er notast við ytri krafta fyrir aukna mótstöðu. Í hreyfiteygjum er notast við stigvaxandi sveifluhreyfingar en í fjaðrandi teygjum er notast við hraðar rykkjandi og skoppandi hreyfingar þar sem skriðþungi líkamans ræður álaginu. Í PNF teygjum er notast við kyrrstöðu, samdrátt og slökun með mótstöðu frá félaga eða teygjubandi. Allar þessar teygjuaðferðir hafa það að markmiði að auka hreyfiferil líkamans og gera hreyfivinnu auðveldari. 

Samþykkt: 
  • 28.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12423


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Liðleiki og teygjur - Alda María.pdf3.6 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna