is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13326

Titill: 
  • Hver er landslags- sérfræðingurinn? Um fagurfræðilegt gildi landslags í ákvarðanatöku og umhverfisskipulagi
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Efni greinarinnar byggir á niðurstöðum rýnihóparannsóknar sem er hluti af doktorsverkefni mínu í heimspeki um fagurfræðilegt gildi landslags. Markmið rannsóknarinnar var að kanna leiðir til þess að bera kennsl á, meta og taka tillit til fagurfræðilegs gildis landslags í ákvarðanatöku er varðar náttúruvernd og nýtingu. Í stað þess að byrja á því að kanna hvaða leiðir hafa verið farnar í öðrum löndum ákvað ég að byrja á rýnihópsrannsókn þar sem ég ræddi við hóp fólks sem talist geta nokkurs konar “sérfræðingar” í landslagi þar sem allir þátttakendur höfðu fengist við landslagshugtakið í starfi sínu í stjórnsýslu eða akademíu. Einn af þeim rauðu þráðum sem lágu í gegnum umræðu hópsins felst í því viðhorfi að landslag sé margþætt hugtak og að því þurfi að varast smættun og nota mismunandi aðferðir til þess að taka tillit til allra þeirra mismunandi þátta sem einkenna landslag þegar ákvarðanir eru teknar. Í greininni fjalla ég um þau þemu og hugmyndir sem rædd voru í rýnihópnum og skoða út frá þeim hvaða leiðir sé best að fara til þess að auka vægi fagurfræðilegs gildis landslags í ákvarðanatöku.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Félags- og mannvísindadeild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13326


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gudbjorg_Johannesdottir_Hvar er landsserfraedingurinn.pdf521.4 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna