Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/606
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
Kjarni ritgerðinnar er einstaklingsmiðun í námi og hvernig listgreinar geta verið liður í
því að grunnskólakennari temji sér einstaklingsmiðaða kennsluhætti. Til að styðja við það
er fjölgreindakenning bandaríska prófessorsins, Howards Gardners um mismunandi svið
greindar í manninum, höfð að leiðarljósi.
Fyrst verður stiklað á stóru um sögu menntunar, þá með tilliti til einstaklingsmiðunar
og list- eða verklegrar nálgunar. Eru þar ýmsir kennismiðir sem koma við sögu. Auk
Gardners verður fjallað stuttlega um verkhyggjumanninn John Dewey, sem lagði áherslu
á nám í gegnum áþreifanleg viðfangsefni. Auk þess er sýn Roberts Sternbergs á þríþætt
kerfi greindar útskýrð gróflega og Benjamin Bloom kemur við sögu með flokkunarkerfi
markmiða í kennslu. Einnig verður vakin athygli á hugmyndum kennarans Steingríms
Arasonar, sem var kennari á fyrri hluta 20. aldar.
Fjallað verður nánar um fjölgreindakenninguna og hvernig megi nýta hana í
kennarastarfinu. Þar á eftir verður bent á vægi og gildi list- og verkgreina í
grunnskólanum og hvers konar undirbúning þær veita nemendum grunnskólanna fyrir
framtíðina.
Í lokin verður skoðað hvað höfundi þykir mikilvægt að hafa í huga varðandi þarfir
nemenda og tekin dæmi um kennsluaðferðir og námshætti sem komið gætu að gagni í því
tilliti. Niðurstöður höfundar eru þær að einstaklingsmiðaðir kennsluhættir í anda
fjölgreindakenningar Gardners séu með ákjósanlegri leiðum sem hægt er að fara við
kennslu nú á dögum. Þær hugmyndir falla einkar vel að þeim markmiðum sem
menntamálaráðuneytið hefur sett grunnskólum landsins í aðalnámskrá. Einnig hefur
höfundur komist að því að sterk rök liggi fyrir því að listir séu mikilvægur þáttur í
almennu námi og þar með ástæða til að flétta þær enn frekar í hið almenna, bóklega nám.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni b.ed. Halla Jónsdóttir.pdf | 414,28 kB | Opinn | Fjölbreytnin í fyrirrúmi - heild | Skoða/Opna |