Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6112
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hugmyndir tómstundafræðinga
um hvaða þættir eru áhrifaþættir þegar kemur að því að leggja grunn að
góðri samvinnu í hópum.
Fjallað er um mismunandi þætti er allir tengjast hugtökunum
samvinnu og hópur á einn eða annan hátt. Sérstaklega eru skoðaðir
þættirnir stigþróun hópa, persónuleikar og hlutverk innan hópa og
ákvörðunartaka innan hópa. Kannað er hversu mikilvæga
tómstundafræðingarnir telja þessa þætti.
Rannsóknin er eigindleg og tekin voru viðtöl við fjóra tómstundafræðinga
sem starfa á mismunandi starfsvettvangi en hafa allir talsverða
reynslu af því að vinna með hópa.
Viðmælendum þótti öllum mikilvægt að átta sig á því á hvaða stigi
hópur væri staddur, að fram færi einróma ákvörðun og að greina
persónuleikana í starfinu. En þegar kom að mikilvægustu þáttunum þá
nálguðust þeir viðfangsefnið frekar út frá þeim viðhorfum sem þurfa að
ríkja í hópnum og hvaða eiginleika leiðbeinendur þurfa að hafa. Það sem
oftast bar á góma var að það þyrfti að myndast traust í hópnum og að
hópurinn þyrfti að hafa eitthvert markmið því annars gerist lítið sem
ekkert. Einnig þyrfti leiðbeinandinn að vera búinn þeim eiginleikum að
búa til aðstæðurnar til þess að samvinnan væri sem best.
Rannsóknin renndi því nokkrum stoðum undir það að þeir þrír þættir
sem höfundur lagði upp með séu mikilvægir en einnig komu fram aðrir
þættir sem viðmælendum fannst mikilvægara að hafa í huga.
The object of this study was to explore what ideas leisure counselors
(social pedagogy) have on what factors are important to facilitate good
cooperation in groups. The study looks at different factors that are all
connected to the terms cooperation and groups in one way or another.
It focuses on the terms group development, personalities and roles in
groups and decision making within groups and how important leisure
counselors consider these factors.
The study is qualitative where interviews were conducted with four
leisure counselors who work at various fields but all have a lot of
experience working with groups.
The interviewed all considered it important to know what stage a
group is on, that the group used consensus decision making and to sort
out which personalities are in a group. But when asked about the most
important factors they approach the subject in a different way. They
rather spoke about attitudes that should dominate the group and the
qualities the facilitator should have. These were things like trust in the
group and that the group should have a goal, if not little or nothing
happens within the group. The facilitator should also have the skills to
make circumstances that promote good cooperation.
The study, in a way, enforced the view that the before mentioned
factors were important but also brought forth factors that the interviewed
thought to be more important.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Samvinna og hópar-M.Ed Einar Rafn Þórhallsson.pdf | 422.09 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |