Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/614
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
Hún fjallar um fámenna skóla og foreldrasamstarf, en þar er leitað svara við þeirri
spurningu hversu heppilegar smærri einingar skóla eru og hvernig foreldrasamstarf
spilar þar inn í. Stuðst er við hvernig slíkir skólar vinna út frá Aðalnámskrá
Grunnskóla til að koma í kring þeim vinnuáætlunum sem ætlast er til af þeim.
Fámennir grunnskólar eru staðreynd og þess vegna er mikilvægt að þeir geti
blómstrað og rækt skyldur sínar sem best við nemendur og foreldra
Þessir skólar reynast frekar dýrir í rekstri sökum smæðar sinnar og eru því oft
stærsti kostnaðarliður lítilla sveitarfélaga. Þar af leiðandi er reynt að fækka
rekstrareiningum í þeirri von að hagræðing náist fram. Því þarf að sýna fram á gildi
þessara skóla í samfélaginu, þar sem þeir eru oftast einnig í hlutverki félagsmiðstöðva
eða samkomustaða á viðkomandi svæðum. Því er það brýnna nú en oft áður að finna
farsæla lausn á málefnum fámennra skóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 303,89 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |