Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6147
Faðir fer með tvö börn sín í sumarbústað þegar vetrarfrí er í skóla þeirra. Úti á landi liggur kyrrð yfir öllu. En þegar undarleg plága grípur um sig verður þögnin þrúgandi. Hinir veiku hverfa og eftir situr aðeins blóði drifinn snjór. Símasamband rofnar og í útvarpinu heyrist aðeins surg. Feðginin halda til Reykjavíkur í leit að móður sinni og eiginkonu sem ekki hefur spurst til síðan þau kvöddust. En höfuðborgin virðist tóm, fyrir utan ónáttúrulegar verur sem eru á ferð um hábjartan dag og þá sem læðast um á kvöldin vopnaðir vasaljósum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
VetrarfríLOKA.pdf | 498.24 kB | Lokaður til...01.01.2030 | Heildartexti |