Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/618
Þróun upplýsingatækninnar hefur leitt af sér breytingar í kennsluháttum um allan
heim. Með aðstoð hennar eru kennurum færar leiðir til samstarfs sem áður þekktust
ekki. Fjölþjóðleg samskipta- og samvinnuverkefni hafa með tilkomu t.d. Evrópsku
mennta-áætlunarinnar litið dagsins ljós í grunnskólum á Íslandi þar sem fleiri og fleiri
íslenskir nemendur kynnast erlendu samstarfi í námi sínu. Í ritgerðinni er fjallað um
hvernig þessi verkefni eru til komin og hvernig þau eru unnin. Þær breytingar sem
hafa orðið á aðbúnaði skóla og áherslur sem Aðalnámskrá grunnskóla leggur varðandi
erlent samstarf eru skoðaðar. Í síðasta kafla eru tvær hugmyndir að fjölþjóðlegum
verkefnum þar sem kennurum er bent á leiðir til að útfæra þær í kennslu. Ýmsar
skýrslur, vefsíður og doktorsritgerð hafa verið notaðar til að afla upplýsinga um
fjölþjóðleg verkefni, framkvæmd þeirra, ásamt kostum og göllum. Helstu niðurstöður
benda til þess að vinna við slík verkefni gefi góða raun fyrir nemendur, kennara og
skóla. Atriði sem þarf að hafa í huga ef samstarfsverkefni eiga að vera vel heppnuð
eru meðal annars skipulagning verkefnis ásamt markmiðssetningu og tengingu við
skólanámskrá hvers skóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ha030186.pdf | 661,96 kB | Opinn | Fjölþjóðleg samskipti - heild | Skoða/Opna |