Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6222
Þessi ritgerð fjallar um forsetakosningarnar árið 2004 og umfjöllun Fréttablaðsins og Morgunblaðsins fyrir þær. Forsetakosningarnar voru haldnar þann 26. júní þetta ár, en rúmum þremur vikum áður hafði Ólafur Ragnar Grímsson forseti notað vald sitt sem 26. grein stjórnarskrárinnar veitir honum og synjað fjölmiðlalögunum. Áhugavert tímabil hófst þá í blaðamennsku á Íslandi þar sem að Morgunblaðið og Fréttablaðið voru í aðalhlutverkum. Eftirfarandi fimm punktar gefa til kynna hvernig ritgerðin er uppsett.
• Í byrjun ritgerðarinnar verður farið yfir þá sem buðu sig fram í embætti forseta.
• Í öðrum hluta verður farið létt yfir flokksbundna fjölmiðla.
• Í þriðja hluta verður farið yfir fjölmiðlafrumvarpið og málskotsrétt forsetans í grófum dráttum.
• Í fjórða hluta verður farið yfir fréttaflutning Morgunblaðsins og Fréttablaðsins fyrir kosningar.
• Í lok ritgerðarinnar verða settar fram umræður og lokaorð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-Ritgerð Aron.pdf | 666,28 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |