Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/6226
Verkefni þetta inniheldur lyklaðar bókfræðifærslur úr félagsblaðinu Lögreglumaðurinn sem Landssamband lögreglumanna gefur út og nær yfir árin 1981 til og með 1992, en útgáfa lá niðri frá árinu 1984-1987. Tilgangurinn með skránni er að auðvelda aðgang að efni blaðsins. Lögreglumenn og þeir sem hafa áhuga á starfs- og stéttarfélagsmálum Landssambands lögreglumanna geta því kynnt sér efni blaðsins á sem auðveldastan hátt. Allar greinar á þessu tímabili eru bókfræðilega skráðar, lyklaðar og gefin efnisorð. Í innganginum kemur fram hvernig verkefnið var unnið og umfang þess. Fjallað er stuttlega um félagsblaðið, sögu íslenskra lögreglumanna á Íslandi og Landssamband lögreglumanna. Í uppbyggingu og gerð skrárinnar eru að finna ítarlegar leiðbeiningar um notkun hennar og dæmi um útlit færslu. Öll þau hjálpargögn sem notuð voru við gerð verkefnisins er að finna í heimildaskránni. Skrárnar eru þrjár: aðalskrá, höfundaskrá og efnisorðaskrá. Í aðalskránni er að finna bókfræðilegar færslur um hverja grein, þar kemur fram: færslunúmer, nafn höfundar, titill greinarinnar, undirtitill (ef hann er til staðar), blaðsíðutal og lýsandi efnisorð um innihald greinarinnar. Í skránni er hvert tölublað tekið fyrir sig og í réttri tímaröð, það er að segja að elsta tölublaðið er fyrst og greinarnar í þeirri röð sem þær koma fyrir í tölublaðinu. Í höfundaskrá eru nöfn allra höfunda og ábyrgðaraðila greinanna sem eru að finna í aðalskránni og er þeim raðað í stafrófsröð. Efnisorðaskráin inniheldur öll efnisorðin sem notuð voru í aðalskránni og eru þau í stafrófsröð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lögreglumaðurinn efnisskrá 1981-1992.pdf | 589,34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |